Erlent

Stjórnvöld í Bretlandi og Bandaríkjunum ósátt við hvalveiðar

Stjórnvöld ytra eru ósátt við að Hvalur 9 sé kominn af stað á ný og krefjast skýringa.
Stjórnvöld ytra eru ósátt við að Hvalur 9 sé kominn af stað á ný og krefjast skýringa. MYND/Vilhelm Gunnarsson

Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands, hefur kallað Sverri Hauk Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, á sinn fund í dag, að því er breska ríkisútvarpið BBC greinir frá á vefsíðu sinni. Þar verður honum gert að skýra forsendur þær sem liggi fyrir ákvörðun íslenskra stjórnvalda að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni á ný.

Þá lýsti Bandaríkjastjórn í gær yfir vonbrigðum með hvalveiðar Íslendinga og sagði Carlos M. Gutierrez viðskiptaráðherra að bandaríkin myndu ráðfæra sig við aðrar þjóðir í því skyni að vernda hvali.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×