Fortíðin gerð upp í ljóðum 4. október 2006 16:00 Bjarni Bernharður Yrkir og málar á víxl. Hann var að senda frá sér sína tólftu ljóðabók og vinnur jafnframt að skáldævisögu sinni.
Bjarni Bernharður, ljóðskáld og myndlistarmaður, hefur sent frá sér ljóðabókina Vélgöltinn þar sem hann gerir upp við örlagaríka atburði úr fortíð sinni. Þetta er tólfta ljóðabók Bjarna sem hefur verið afkastamikill á síðustu árum. „Ég hef gefið út eina bók á ári frá árinu 2002,“ segir Bjarni. „Ég hef verið að gera líf mitt upp í ljóðum og sé fram á að sá hringur fari að lokast,“ segir Bjarni sem telur sig þó örugglega þurfa tvær bækur til viðbótar áður en hann lýkur þessu uppgjöri. Bjarni hyggst einnig gera lífi sínu betri skil í skáldævisögu sem hann segist vera kominn vel á veg með. „Þetta er skáldsaga sem byggir á sjálfsævisögulegum grunni,“ segir Bjarni sem eyðir drjúgum tíma í skriftir á milli þess sem hann sinnir myndlistinni. „Ég er nú svo lánsamur að þetta hefur ekkert þvælst hvort fyrir öðru og á meðan ég sinni ritstörfum læt ég málverkin eiga sig og öfugt.“ Bjarni er með málverkasýningu í gangi í 12 Tónum þessa dagana en annars eiga ljóðin hug hans allan um þessar mundir. „Ég er alltaf að semja ljóð en svo er ég líka að ganga frá ljóðasafni með úrvali úr síðustu tíu bókum mínum. Elstu ljóðin mín hafa mörg hver verið illfáanleg lengi og ég held að helst megi finna þau í fornbókabúðinni hans Braga Kristjónssonar.“ Bjarni er vanur því að selja ljóð sín í Austurstræti og það verður engin breyting þar á þannig að fólk getur nálgast Vélgöltinn þar, auk þess sem bókin verður seld í bókaverslunum.
Menning Mest lesið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Lífið Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira