Afhausun í beinni í stuttmynd Ara 4. október 2006 14:15 Ekki beint gegn írak Mynd Ara Alexander, Arabískar nætur, er nokkuð sláandi en leikstjórinn segir hana ekki beint gegn Íraksstríðinu sem slíku heldur stríðsrekstri í heild sinni. MYND/Valli
Kvikmyndagerðamaðurinn Ari Alexander Ergis sýnir stuttmyndina sína Arabíska nætur á undan mynd Michael Winterbottom, The Road to Guantanmo, laugardaginn 7.október klukkan tíu á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Mynd Ara er nokkuð sláandi en í forgrunni er aflífun Jack Kensley, bandarísks hermanns sem tekinn var til fanga og afhausaður í beinni útsending á veraldarvefnum. Íraksstríðið hefur verið gagnrýnt töluvert að undanförnu en Ari segist ekki vera að taka afstöðu til þess með myndinni. "Ég finn jafnmikið til með Bandaríkjamönnum, Írökum og svo þeim sem telja á sig ráðist. Arabískar nætur er kannski ekki beint gagnrýni á Íraksstríðið sem slíkt heldur stríðsrekstur í heild sinni, samanber stríðið í Tsjetsjeníu þar sem Rússar fara offari. Sagan endurtekur einfaldlega aftur og aftur," segir Ari. "Ég notast við klippur af netinu, svokallað snuff dót og blanda því saman við fréttamyndir," útskýrir Ari sem segist vera undir miklum áhrifum frá Tag der Freiheit, mynd eftir Leni Riefenstahl sem gerð var eftir hina umdeildu kvikmynd Sigur viljans. "Nasistum fannst þýska vélin ekki vera sýnd nægilega mikið í Sigri viljans og fannst því tilvalið að sýna styrk þýska stálsins enn frekar," segir Ari og bætir því jafnframt við að áhrifa Chaplin gæti einnig enda hafi hann gert The Great Dictator þar sem óspart hafi verið gert grín að áróðursaðferðum þriðja ríkisins. "Við sjáum þessa sömu hluti gerast hjá Bandaríkjunum þar sem stórar og flottar þyrlu og flugvélar eru sýndar í fullri action." Ari segist hafa fylgst vel með gangi mála í Írak. "Myndin var frumsýnd á sunnudaginn og við vorum tilbúnir með hana á laugardeginum. Þetta er afrakstur margra mánaða vinnu og á Arnar Ívarsson sem sér um tölvugrafíkina alveg sérstakt hrós skilið sem og Þór Eldon en hann semur tónlistina," útskýrir Ari sem fannst tímasetningin á sýningu myndarinnar eiga sérstakleg við nú þegar kvikmyndin um fangabúðirnar á Kúbu rataði á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðina í Reykjavík. "Kvikmyndahátíðin á mikið hrós skilið fyrir að sýna þær myndir sem eflaust aldrei hefðu komið í bíó og gestirnir tveir á mánudagskvöldinu, þeir Rhuhel Ahmed og Asif Iqbal, höfðu mikil áhrif á mig sem og aðra sem þarna voru staddir," segir Ari.
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira