Lífið

Farrell fer fram á nálgunarbann

Farrel mætti beint á frumsýningu myndarinnar Miami Vice eftir atvikið og var á nálum. Hér er hann ásamt Michael Mann leikstjóra og Gong Li leikkonu.
Farrel mætti beint á frumsýningu myndarinnar Miami Vice eftir atvikið og var á nálum. Hér er hann ásamt Michael Mann leikstjóra og Gong Li leikkonu. MYND/nordicphotos/getty images

Colin Farrell hefur farið fram á lögbann á hendur fyrrum ástmey sinni, sem veittist að honum í myndveri kvöldþáttar Jay Lenos í síðustu viku. Fyrirsætan Dessarae Bradford stökk upp á svið i miðju viðtali Lenos við leikarann og hreytti í hann ókvæðisorðum. Öryggisverðir þrifu hana á burt en Farrell galt líku líkt og kallaði á eftir henni að hún væri galin.

Farrell og Bradford áttu í skammvinnu ástarsambandi en í fyrir kærði hún leikarann írska til lögreglu fyrir að elta sig á röndum. Leikarinn hefur nú farið fram á nálgunarbann og segir meðal annars í beiðni hans að hann óttist að áreitni hennar muni stigmagnast og stefna mér og fjölskyldu minni í hættu.

Um leið og upptöku þáttarins var lokið dreif Farrel sig á frumsýningu myndarinnar Miami Vice, sem hann leikur aðalhlutverkið í, og var augljóslega brugðið. Þetta var óhugnalegt...ég hafði ekki hugmynd hvað var að gerast, sagði leikarinn í samtali við fréttamenn fyrir frumsýningu. Að sögn sjónarvotta í þætti Lenos ætlaði Bradford að láta Farrell árita bók sína um samband þeirra tveggja og ber heitið: Colin Farrell: A Dark, and Twisted Puppy sem myndi útleggjast sem Colin Farrel: Kolklikkaður hvolpur. Sem öryggisverðir teymdu hana út kallaði hún vís til leikarans að þau myndu hittast í dómssal.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.