Lífið

Björk í hljóðveri

Björk vinnur með Antony og hljómsveitinni Konono N°1.
Björk vinnur með Antony og hljómsveitinni Konono N°1. MYND/Heiða
Tónlistarkonan Björk Guðmundsdóttir kemur víða við þessa dagana, ef marka má fréttir erlendra tónlistarmiðla. Pitchforkmedia.com greinir frá því að fyrir skemmstu hafi Björk unnið lítillega með Antony úr hljómsveitinni Antony & the Johnsons. Fyrir helgi sagði sami tónlistarvefur frá því að Björk hafi verið í hljóðveri með Konono N°1. Ekki hefur verið ákveðið hvort þessi samvinnuverkefni endi á plötu með Björk. Talsmaður Konono staðfestir að hljómsveitin hafi eytt þremur dögum í Brussel í síðasta mánuði og unnið að nokkrum nýjum Bjarkar-lögum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.