Erlent

Umhverfismál efst á baugi hjá ESB í Lahti

Fáni gestgjafanna finnsku er á sínum stað í fánaröð Evrópusambandsríkjanna.
Fáni gestgjafanna finnsku er á sínum stað í fánaröð Evrópusambandsríkjanna. MYND/AP

Leiðtogar Evrópusambandslandanna eru nú á leið til Helsinki til að taka þátt í hálfsárslegum fundi leiðtoganna. Helstu umræðuefnin verða hlýnun andrúmsloftsins, orkuöryggi og mengun. Einnig verður rætt við Pútín forseta Rússlands um stöðu mannréttinda í landi hans hugsanlegan aukinn aðgang að gífurlegum olíu- og gasbirgðum Rússlands.

Einnig er búist við að leiðtogarnir þrýsti á Pútín að herða á rannsókn dauða blaðakonunnar Önnu Politkovskayu og tjái Rússanum áhyggjur af því að tjáningarfrelsi sé ábótavant í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×