Óflughæfar nær fimmta hvern dag frá áramótum 16. maí 2006 12:08 TF-LÍF verður að öllum líkindum nothæf á morgun. MYND/Sigurður Jökull Ólafsson
Þyrlur Landhelgisgæslunnar hafa verið óflughæfar samtímis nær fimmta hvern dag frá áramótum. Þá daga hefur þurft að treysta alfarið á aðstoð frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli eða danska varðskipinu Triton ef þyrlu hefur þurft til björgunarstarfa. Hvorug þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið til taks undanfarna daga. Því þurfti að leita til Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og danska varðskipsins Tritons til að fá þyrlur til leitar að piltinum sem týndist á Möðrudalsöræfum. Báðar þyrlur varnarliðsins hafa verið mikið frá síðustu mánuði og meira en undanfarin ár, einkum vegna þrjú þúsund tíma skoðunar á TF-LÍF og endurbóta á TF-SIF. Þá 136 daga sem liðnir eru af árinu hefur TF-LÍF verið frá vegna bilana í fjóra daga og 55 daga vegna reglubundinna skoðana. Allt í allt eru það 59 dagar. TF-SIF hefur verið enn meira frá. Hún hefur misst úr 20 daga vegna bilana og 52 vegna endurbóta. TF-SIF hefur því ekki verið flughæf í 72 daga, eða meira en helmings þess tíma sem liðinn er af árinu. Nú þegar fimm og hálfur mánuður er liðinn af árinu hafa báðar þyrlurnar verið til taks samtímis í 38 daga en 24 daga hefur staðan verið sú að hvorug þyrlan hefur verið til taks. Hvorug þyrlan er til taks í augnablikinu. TF-LÍF verður þó að öllum líkum aftur nothæf á morgun og TF-SIF er væntanleg frá Noregi 25. maí. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og æðsti yfirmaður Landhelgisgæslunnar, vildi ekkert tjá sig um ástand þyrlanna þegar rætt var við hann í morgun.
Fréttir Innlent Mest lesið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Innlent Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð Innlent Fleiri fréttir Magnea sækist eftir 2.-4. sæti á lista Samfylkingar Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Fleiri lífeyrisþegar og leikskólaforeldrar sem þurfa jólaaðstoð „Mjög erfitt starf tilfinningalega“ Handtekinn með stóran hníf Leggja til að bókasafnsgreiðslur verði hækkaðar Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Ekkert því til fyrirstöðu að Ísland taki þátt í drónakaupum Ekkert ákveðið varðandi framboð: „Ég er í tveimur flokkum“ Hálka þegar bíll valt í Biskupstungum Mikið myrkur þegar ekið var á konu á rafhlaupahjóli 270 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Ástandið á bráðamóttökunni sýni viðkæmni kerfisins Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Hryðjuverkaárás í Ástralíu og ástand í heilbrigðiskerfinu Sanna segir frá nýju framboði Dyraverðir handteknir vegna líkamsárásar Skýrsla ráðherra svari ekki mikilvægum spurningum um brúun bilsins Aðstæður bágbornar á spítalanum til að mæta svo miklu álagi Tveir fluttir á spítala vegna umferðarslyss í Biskupstungum Bjarnveig Birta og Stein Olav sigurvegarar forprófkjörs „Ég fæddist inn í pólitískan líkama“ Eldur í íbúð við Snorrabraut Skilur að starfsfólk hafi ekki viljað afgreiða manneskju með hakakross Sjúklingar ekki lengur í bílageymslu bráðamóttökunnar Sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra hafnað Píratar vilja ganga til viðræðna um sameiginlegt framboð Mikilvægt að geyma stafræn gögn innan lögsögunnar Sjá meira