Drogba ætlar að verða bestur á Englandi 3. desember 2006 20:45 Drogba segist aldrei hafa verið í betra formi. MYND/AFP
Didier Drogba, framherji Chelsea, skortir ekki sjálfstraust. Í dag lýsti hann því yfir að markmið hans á tímabilinu væri að verða besti framherji Bretlandseyja. Drogba, sem spilað hefur frábærlega það sem af er leiktíð, segist enn eiga mikið inni. “Mitt markmið er að nýta öll færin sem ég fæ og skora þannig fullt af mörkum. Í lok tímabilsins vil ég verða talinn besti leikmaður landsins. Ég er að spila vel og í besta formi sem ég hef nokkurn tíma verið í en ég hef ekki ennþá sýnt mitt besta. Ég ætla mér að verða ómetanlegur inn í vítateig andstæðinganna,” sagði Drogba við enska fjölmiðla í dag. Drogba skrifaði nýverið undir nýjan fjögurra ára samning við Chelsea, en á tímabili í sumar leit út fyrir að hann væri á förum frá félaginu. Drogba hefur þakkað traustið með því að skyggja algjörlega á Andrei Shevchenko, sem kom til Chelsea í sumar fyrir 30 milljónir punda. “Ég velti því oft fyrir mér að róa á ný mið, en ég er stríðsmaður að eðlisfari sem vill ekki gefast upp og það kom því ekki til greina. Ég vill gleyma síðasta tímabili því þá náði ég mér ekki almennilega á strik, en nú ætla ég að sýna hvað ég get,” sagði Drogba og bætti því að lokum við að hann yrði sannfærður um að Chelsea yrðu meistarar þriðja árið í röð. “Ég veit að við vinnum aftur,” sagði hann án þess að blikka.
Enski boltinn Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið Arnar pirraður: „Hræddir að sækja úrslit“ Fótbolti „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Sjá meira