Erlent

Sænska ríkisstjórnin gagnrýnir hvalveiðar

MYND/Vilhelm Gunnarsson

Umhverfisráðherra Svíþjóðar gagnrýnir Íslendinga harðlega fyrir hvalveiðar í atvinnuskyni og segir í viðtali við Dagens Nyheter að sænska stjórnin hvetji Íslendinga til að hætta þeim. Það hafi einmitt verið fyrir mistök sænsku sendinefndarinnar á hvalveiðiráðstefnunni árið 2002 að Svíar mæltu með inngöngu Íslendinga í ráðið.

Við inngönguna í ráðið skuldbundu Íslendingar sig til að hefja ekki hvalveiðar í atvinnuskyni fyrr en árið 2006. Svíar reyndu á sínum tíma að ógilda atkvæðagreiðsluna þegar þeir áttuðu sig á hvað skuldbinding íslendinga þýddi, en án árangurs, og réði atkvæði Svía úrslitum um að innganga Íslands var samþykkt, með því ákvæði að Íslendingar gætu hafið hvalveiðar í atvinnuskyni árið 2006.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×