Innlent

Ingunn hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar

Ingunn Snædal, grunnskólakennari, hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar en þau voru veitt í sjöunda sinn við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Verðlaunin hafa verið veitt annað hvert ár frá árinu 1994, en verða framvegis veitt árlega.

Alls bárust tæplega 50 handrit í keppnina þetta árið. Að þessu sinni var besta verkið "Guðlausir menn - Hugleiðingar um jökuvatn og ást" eftir Ingunni.

Hún hefur áður gefið út eina ljóðabók, "Á heitu malbiki" árið 1995. Ingunn stundar nú meistaranám í Íslensku við Háskóla Íslands. Verðlaunabókin kom út í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×