Innlent

Skipulögð glæpastarfsemi

Í vikunni fundust 12 kíló af amfetamíní falin í bíl Litháa sem komu með Norrænu. Þetta er nýjasta málið á árinu í röð stórra fíkniefnamála þar sem amfetamín kemur við sögu. Í febrúar voru Litháar teknir á Keflavíkurflugvelli með amfetamín í fljótandi formi og önnur efni til vinnslu amfetamíns. Að áliti sérfræðinga var hægt að vinna úr þessu magni um 30 kíló af amfetamíni. Í sama mánuði fundust þrjú kíló af efninu á Keflavíkurflugvelli í fórum Íslendinga.

Í mars fundust svo á þriðja tug kílóa af fíkniefnum í bifreið sem flutt hafði verið til landsins með skipi - Amfetamínkílóin voru um fimmtán. Samtals hafa því yfirvöld lagt hald á ígildi 60 kílóa af amfetamíni í nokkrum málum það sem af er árinu - og árið er rétt rúmlega hálfnað.

Þetta er sláandi aukning frá síðustu árum. Árið 2003 var lagt hald á 3 kíló af amfetamíni. Árið eftir varð mikil aukning og fundust 16 kíló og svipað magn á síðasta ári. En á þessu ári er magnið að minnsta kosti orðið þrefalt meira eða ígildi 60 kílóa í nokkrum málum og er þá örugglega ekki allt talið.

Þetta skýrist örugglega að hluta af auknum dugnaði í eftirliti segja heimildarmenn innan lögreglunnar en viðurkenna um leið að þetta geti einnig verið vísbending um að mun meira af amfetamíni streymi til landsins.

En tengls Litháa við þessi stóru amfetamínmál eru áhyggjuefni að mati lögreglunnar. Háttsettur heimildarmaður þar innan veggja segir engan vafa leika á því að þessi innflutningur sé hluti af skipulagðri glæpastarfsemi - slíkt sé umfangið. Það sé stókostlegt áhyggjuefni enda fylgi því mikil meinsemd ef erlendar mafíur ná að festa hér rætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×