Innlent

Ekki fundað um varnarmál

Mynd/Valli

Fundurinn í gær var sá þriðji sem haldin hefur verið frá því að Bandaríkjamenn tilkynntu í mars einhliða ákvörðun sína um að flytja herinn af landi brott í september. Litlar sem engar fregnir hafa borist af árangi í þessum viðræðum - ef nokkur er. Málið er á forræði Geirs Haarde forsætisráðherra og fyrir hans hönd leiðir Albert Jónsson, verðandi sendiherra í Washington viðræðurnar. Af hálfu bandaríkjamanna eru í forsvari þau Thomas Hall, einn af aðstoðarutanríkisráðherrum Bandaríkjanna og Carol Van Voorst, sendirherra.

Í tilkynningu eftir fundinn í gær sendi Forsætisráðherra frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að í fyrsta sinn í gær hafi verið rætt efnislega um einstök atriði sem lúta að yfirtöku íslendinga á rekstri og viðhaldi Keflavíkurflugvallar og einnig hvernig farið verði með mannvirki Bandaríkjamanna og NATO á svæðinu. Segir í tilkynningu að vel hafi miðað í viðræðunum. Þá var einnig rætt um það á fundinum hverngi vörnum Íslands verði háttað eftir brotthvarf hersins en fyrirfram voru uppi vangaveltur um að sá þáttur yrði ekki til umræðu á fundinum. Það fást engar upplýsingar um efnisinnihald viðræðnanna.

Næsti viðræðufundur hefur verið settur á dagskrá í ágúst - mánðuði áður en brottflutningi hersins á að vera að fullu lokið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×