Hefur heyrt að starfsfólki hafi verið hótað 25. júní 2006 19:14
Trúnaðarmaður starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli hefur heyrt að erlendum starfsmönnum hafi verið hótað brottvísun úr landi ef þeir tækju þátt í mótmælaaðgerðum starfsfólksins í dag. Litlar tafir urðu á millilandaflugi frá Keflavíkurflugvelli í morgun þrátt fyrir aðgerðir starfsfólks Flugþjónustunnnar. Starfsmennirnir boðuðu að þeir myndu leggja niður vinnu klukkan fimm í morgun, á háannatíma, til að mótmæla kjörum sínum og vinnuaðstæðum. Ekki var um skipulegar aðgerðir að ræða og því erfitt að sjá það fyrirfram hversu margir myndu taka þátt. Yfirmenn Flugþjónustunnar og Icelandair, sem er móðurfyrirtæki Flugþjónustunnar, mættu tímanlega og byrjuðu að skipuleggja hvernig þeir gætu komið í veg fyrir að aðgerðirnar myndu valda töfum. Starfsmennirnir fóru svo að týnast inn í komusal flugstöðvarinnar upp úr fimm og lögðu margir niður störf. Tafir urðu þó ekki verulegar en fóru mestar upp í klukkutíma. Samkvæmt heimildum NFS var nokkrum erlendum starfsmönnum hótað af yfirmönnum sínum bæði uppsögn og að verða vísað úr landi ef þeir tækju þátt í aðgerðunum. Trúnaðarmaður starfsmanna segir að hann hafi heyrt þetta en geti þó ekki tjáð sig um málið. Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar, segir ekkert hæft í þessum ásökunum og vísar þeim algjörlega á bug. Um sjö leytið í morgun kallaði forstjóri Icelandair fulltrúa hópsins á sinn fund. Starfsmennirnir voru ánægðir með þann fund og ætla að hitta hann aftur síðar í vikunni til að reyna að finna lausn á deilunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Innlent Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði Innlent Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Innlent Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Innlent Önnur sprunga opnast Innlent Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Innlent Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Innlent Fleiri fréttir Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Fundu tennur í aftursætinu á bílaþvottastöð Landa í Grindavíkurhöfn og botna ekkert í lokunum Mikið eldingaveður á Vestfjörðum Eldgosið í heimsmiðlunum: „Ísland: Rýmt“ Enn eitt gosið hafið og íbúar tala um Groundhog Day Kæmi mér ekki á óvart að þetta væri síðasta Sundhnúkagosið Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Önnur sprunga opnast Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Sjá meira