Frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ ökuréttindalaus 19. maí 2006 17:29
Annar maður á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ hefur ekki ökuleyfi þar sem hann var sviptur því í eitt ár eftir ölvunarakstur í nóvember á síðasta ári. Samherjar hans vissu ekki af málinu fyrr en í síðustu viku. Böðvar Jónsson skipar annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ. Hann hefur verið á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum frá árinu 1994 og skipaði einnig annað sætið á lista flokksins á síðasta kjörtímabili. Böðvar var í nóvember á síðasta ári stöðvaður á Reykjanesbrautinni í reglubundnu eftirliti og mældist þá áfengismagn í blóði hans yfir leyfilegum mörkum og var hann sviptur ökuréttindum í ár. Böðvar hafði verið að skemmta sér kvöldið áður í Reykjavík, farið síðan á hótel og gist þar en lagt snemma á stað daginn eftir til Reykjanesbæjar. Böðvar vildi ekki tjá sig um málið þegar NFS hafði samband við hann. Hann sagðist líta á þetta sem persónulegt mál og hann hefði ekki áhuga á að ræða það í fjölmiðlum. Mál Eyþór Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins í Árborg, hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga. En Eyþór ók ölvaður á ljósastaur síðstu helgi og stakk af af vettvangi slyssins. Samkvæmt heimildum NFS hefur listi Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ fundað um málið. Árni Sigfússon, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og bæjarstjóri, segir aðra flokksmenn ekki hafa vitað af málinu fyrr en í vikunni. Hann segir engin eftirmál verða af þessu hjá flokknum og telur að ef forystan hefði vitað af málinu, þegar stillt var upp á lista flokksins fyrir um tveimur mánuðum, hefði það engu breytt, þó hann segi alltaf erfitt að svara svona eftir á.
Fréttir Innlent Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira