Framsóknarflokkurinn vill sérstakan Kópavogsstrætó 17. maí 2006 16:52 Kópavogur MYND/GVA
Framsóknarflokkurinn í Kópavogi vill halda áfram að lækka dagvistargjöld og koma á fót sérstökum Kópavogsstrætó. Oddviti B-listans segist ekki leggja áherslu á að Framsóknarflokkurinn endurheimti bæjarstjórastólinn í Kópavogi. Þetta kom fram á kynningarfundi Framsóknarflokksins í Kópavogi, fyrir kosningarnar um þarnæstu helgi, sem haldinn var á kosningaskrifstofu flokksins við Digranesveg í dag. Einnig stefnir flokkurinn að því að minnka álögur á bæjarbúa á komandi kjörtímabili, lækka fasteignagjöld og greiða niður æfingagjöld vegna íþróttaiðkunar barna og unglinga allt að 18 ára aldri. Aðspurður hvort þetta þýði ekki að nauðsynlegt sé að draga saman á einhverjum sviðum rekstursins segir Ómar Stefánsson, oddviti B-listans í Kópavogi, svo ekki vera. Bærinn hafi enda verið eitt best rekna sveitarfélag landsins. Framsóknarmaður sat á bæjarstjórastóli í Kópavogi í rúm fjórtán ár, eða frá því Sigurður Geirdal tók við embættinu árið 1990 og gegndi því þar til hann féll frá árið 2004. Spurður hvort framsóknarmenn þyrsti ekkert í að fá mann úr sínum röðum í embætti bæjarstjóra að nýju segir Ómar svo ekki vera. Þeir hafi enda ekki haft neitt bæjarstjóraefni þegar Sigurður varð bæjarstjóri fyrir 16 árum. Aðalatriðið sé að gera bæinn betri.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sjá meira