Stjórnvöld hafa ekki sinnt málefnum aldraðra 16. maí 2006 14:00 Stefán Ólafsson, prófessor, er frummælandi á fundinum í kvöld. MYND/Gunnar V. Andrésson
Samtök eldri borgara boða til þjóðfundar um málefni sín í Háskólabíói í kvöld. Stefán Ólafsson, prófessor, mun birta niðurstöður rannsóknar sem sýnir að eldri borgarar hafa dregist aftur úr í kjörum og einnig verður gerður samanburður við kjör eldri borgara á Norðurlöndunum. Samtök eldri borgara hafa vakið athygli á kjörum sínum í aðdragana sveitarstjórnarkosninganna sem fram fara í næstu viku. Á þjóðfundi sem samtökin boða til í Háskólabíói í kvöld, gefst fólki tækifæri til að spyrja formenn stjórnmálaflokkanna og sveitarstjórnarfólk út úr um stefnu þeirra í þessum málaflokki, sem er vistaður bæði hjá ríki og sveitarfélögum. Á fundinum flytur Stefán Ólafsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, erindi sem hann kallar "Lífskjör eldri borgara", og ef að líkum lætur eiga niðurstöður hans eftir að valda heitum umræðum eins og fyrri niðurstöður hans um kjör þeirra lægst launuðu. Þá mótmæltu ráðamenn niðurstöðum hans og sökuðu hann jafnvel um að fara vísvitandi með rangt mál. Að loknu erindi Stefáns verða pallborðsumræður. Formönnum stjórnmálaflokkanna og sveitarstjórnaranna hefur verið boðið á pallborðið. Stefán segir að kjör lágtekjufólks hafi dregist afturúr meðaltekjum síðan 1995 og skattkjör aldraðra hafi versnað á þessu tímabili. Stjórnvöld á Íslandi hafi ekki sýnt málefnum aldraðra nógu mikinn áhuga. Hið nýstofnaða Aðstandendafélag aldraðra, AFA, stendur fyrir Þjóðfundinum sem hefst klukkan átta í Háskólabíói.
Fréttir Innlent Mest lesið „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Innlent Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns Innlent Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Innlent Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Innlent Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Innlent Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Innlent „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ Innlent Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Innlent MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Innlent Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Fleiri fréttir Langtímarannsóknir skorti á áhrifum kreatíns „Þetta er auðvitað stórhættulegt“ Styttist í háþróuð gervigreindarsvindl á íslensku Setja þurfi meiri þunga í hagsmunagæslu gagnvart ESB Neyðast til að endurbyggja grunnskólann vegna myglu Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Áhyggjur af tollum ESB, olíuþjófur gómaður og fífldjarfir ferðamenn „Í minningu sonar - og allra þeirra sem aldrei komu heim“ MBA-nemi kvartaði og kveinaði en beið lægri hlut Hjólreiðamaður slasaður við Kerlingarfjöll Árekstur í Öxnadal Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi Vilja að ríkisstjórnin leggi allt kapp í að afstýra tollunum Sagði sig úr þingmannahóp: „Ég læt ekki nota mig í slíkum tilgangi“ Ekkert hægt að gera nema húseigendur kæri Segir afkomu hundraða ógnað með beinum hætti Mikil umferð á gosstöðvunum og óvissa á Grundartanga Gripinn glóðvolgur í skjóli nætur við að tappa af bílnum Sóttu veikan ferðamann í Loðmundarfjörð Óteljandi skiptin sem lögregla hefur þurft að vísa sömu mönnum út Vara fólk við því að ganga á nýrunnu hrauninu Stór jarðskjálfti í Vatnajökli Foreldrar ómeðvitaðir um fjárhagstjón barnanna í fjárhættuspilum Sjáanlega nóg komið þegar þjóðarleiðtogar taka undir Eldur í yfirgefnu húsi í Borgartúni Tvítugur Akureyringur með rafskutluleigu fyrir ferðamenn Þekktum Íslendingum lögð orð í munn með gervigreind Fulltrúar minnihlutans á einu um að tollarnir hafi ekki verið ræddir Gervigreind leggur Íslendingum orð í munn, bátabruni og veðrið um versló Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Sjá meira