Innlent

Vélarvana bátur dregin til hafnar

Björgunarskipið Einar Sigurjónsson frá Hafnarfirði var kallaður út kl.23:14 í gærkvöldi. Bátur af gerðinni Shetland 535 var vélarvana við Syðrahraun. ES var farinn úr höfn kl.23:38. Komið var að bátnum kl. 00:30 og taug var komin á milli bátana 10 mín. seinna. Komið var inn í Hafnarfjarðarhöfn kl.02:15.  Aðgerðin tókst mjög vel en mjög gott var í sjóinn þegar á aðgerðinni stóð



Fleiri fréttir

Sjá meira


×