Framkvæmdir við álver í Helguvík gætu hafist á næsta ári 9. maí 2006 18:56
Stefnt er að undirritun rammasamkomulags um álver í Helguvík síðar í þessum mánuði og gætu framkvæmdir hafist á næsta ári. Orkuveita Reykjavíkur telur sig geta útvegað næga raforku til að álverið geti tekið til starfa árið 2010. Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur markaði þá stefnu fyrir rúmum mánuði að stefna að raforkusölu til álvers í Helguvík og fól forstjóra að kanna hvaða möguleika fyrirtækið hefði í því sambandi. Nú liggur fyrir niðurstaða. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, segir að menn hafi verið skoða möguleika á Heillisheiði til að útvega 100 megavött til Helguvíkur. Best væri að koma álverinu í gagnið í lok árs 2010 sem þýðir að framkvæmdir gætu byrjað á næsta ári. Menn séu vongóðir um að það takist. Hitaveita Suðurnesja kæmi einnig að raforkusölu til Norðuráls og segir Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitunnar, að hún muni getað útvegað rúmlega 100 megavött. Þetta þýðir að fundin er næg raforka sem dugar til 120 þúsund tonna álframleiðslu í Helguvík en það yrði stærð fyrri áfanga 240 þúsund tonna álvers. Aðilar eru nú að forma rammasamkomulag um framhald málsins og er stefnt að því að það verði undirritað eftir tvær til þrjár vikur. Guðmundur segir margt ennþá óklárt. Eftir sé að vinna umhverfismat, bæði fyrir álverið og tengdar virkjanir. Útlínur verkefnisins muni þó skýrast innan fárra vikna.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira