DV birti ranga mynd með umfjöllun um kókaínsmygl 6. maí 2006 19:00
DV birti mynd af rangri stúlku með umfjöllun um kókaínsmygl í blaðinu í dag. Ritstjórinn harmar þessi leiðu mistök, en faðir stúlkunnar segir hana miður sín og að umfjöllunin geti skaðað feril hennar sem skíðakonu. Grein DV fjallar um handtöku tæplega tvítugrar stúlku sem stöðvuð var á Keflavíkurflugvelli fyrir þremur vikum með 140 grömm af kókaíni innvortis. Blaðið nafngreinir stúlkuna, sem gat sér gott orð fyrir skíðaiðkun á árum áður, og fyrirsögnin er: „Skíðastúlka með kókaín innvortis." Með greininni er hins vegar birt mynd af annarri stúlku en handtekin var en á það sameiginlegt að hafa gert garðinn frægan innan skíðaíþróttarinnar. Jón Konráðsson, faðir stúlkunnar sem myndin er af, segir sér hafa brugðið mjög þegar hann sá mynd af dóttur sinni með greininni. Stúlkan er við nám í Noregi og segir Jón að hún hafi orðið mjög miður sín þegar hann sagði henni frá mistökunum í dag. Þá segir hann að umfjöllunin geti skaðað feril hennar sem skíðakonu. Aðspurður hvort honum finnist koma til greina að krefjast skaðabóta svarar Jón að ekkert hafi verið ákveðið í þeim efnum. Honum finnst jafnframt undarlegt að skíðaíþróttin skuli vera dregin inn í umfjöllunina. Skíðasamband Íslands sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem mistökin eru hörmuð, sem og að DV skuli tengja skíðaiðkun við umfjöllun sína um innflutning á eiturlyfjum. Páll Baldvin Baldvinsson, ritstjóri DV, segist einnig harma mistökin. Hann segir þetta hafa gerst vegna mistaka við myndaleit á netinu. Við leit eftir nafni stúlkunnar sem handtekin var á tilteknum skíðavef komi upp röng mynd. Páll segir að við slíka leit í framtíðinni, sem tíðkist nokkuð á DV, verði kannaðar enn betur þær myndir sem svari kalli á netinu.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Fleiri fréttir Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Sjá meira