Fólk hvatt til að skrá neyðarnúmer í farsíma sína 10. maí 2006 08:15 Úr myndasafni MYND/Vilhelm
Hvernig er hægt að sjá til þess að þeir fyrstu á vettvang slyss viti í hvaða aðstandendur þeir eiga að hringja. Ein leið til þess er að skrá ICE-neyðarnúmer í farsímann. Tölvupóstur gengur nú manna á milli þar sem fólki er bent á að skrá ICE í farsímann sinn fyrir framan númer þess aðstandenda sem það vill að hringt verði í ef það lendir í slysi. Um er að ræða alþjóðlega skammstöfun en ICE stendur fyrir In Case of Emergency sem útlegst á íslensku í neyðartilviki. Hugmyndin er sú að þegar sjúkraflutningafólk, læknar, hjúkrunarfólk, björgunarsveitarmenn og fleiri hlúa að fólki sem lent hefur í slysi eða bráðum veikindum þá geti þeir fljótt fundið út hver nánasti aðstandandi er. Oft leita þeir í nafnalista í minni gsm síma en erfitt getur reynst að finna þar út hver nánasti aðstandandi er. Hugmyndin kemur upphaflega frá Bretlandi og breiðist nú hratt út. Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sviðstjóri hjá slysavarnarsviði Landsbjargar, segir að slík merking í gsm símum geti nýst vel. Björgunarsveitarmenn hafi lent í því að slasaðir einstaklingar séu ekki með skilríki á sér og erfitt hefur reynst að finna út hverjir nánustu aðstandendur þeirra eru. Hjá lögreglunni í Reykjavík fengust þær upplýsingar að þar hefðu menn nýlega farið að kynna sér þetta og ekki enn orðið mikið varir við slíkar merkingar. Þeir voru sammála Sigrúnu um að það að hafa ICE neyðarnúmer í gsm símanum geti flýtt fyrir þegar reynt er að finna út hver nánsti aðstandandi er. Sigrún telur að þetta nýtist fólki sérstaklega þegar það er á ferð erlendis og því um að gera að setja landsnúmer fyrir framan það símanúmer sem skráð er sem ICE neyðarnúmer.
Fréttir Innlent Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Fleiri fréttir Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sigríður Þorvaldsdóttir látin Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sjá meira