Vigdís mótmælti 27. september 2006 13:53
Í broddi fylkingar mótmælagöngunnar í gærkvöld fór fyrrverandi forseti lýðveldisins, arm í arm við Ómar Ragnarsson. Vigdís Finnbogadóttir segir þetta hugsanlega munu vekja einhver viðbrögð en segir þetta vera í samræmi við afstöðu sína sem hún hafi áður lýst yfir. Vigdís sagði í samtali við NFS í morgun að afstaða hennar hafi mátt vera öllum ljós. Hún hefur meðal annars skrifað í bók Ómars Ragnarssonar um Kárahnjúka að henni fyndist að forseti hefði fremur átt að neita að undirrita frumvarpið um Kárahnjúkavirkjun en fjölmiðlafrumvarpið umtalaða. Þetta sé stór ákvörðun sem hafi óafturkræf áhrif á landið og í slíkum málum eigi þjóðin að fá að ákveða. Vigdís segist ekki geta hvatt til þess að gróðurþekja landsins verði aukin og styrkt í einu orði og setið svo hjá þegar gróðurþekja landsins sé eyðilögð, þar sem hún sé viðkvæm fyrir. Hún segist skilja sjónarhól verkfræði og vísinda og að hún sé ekki á móti virkjunum sem slíkum en vill ekki sjá að landinu verði sökkt. Ýmsir kunna að hafa velt því fyrir sér hvort fyrrverandi forseti hreinlega mætti taka svo einarða afstöðu gegn ákvörðunum og framkvæmdum á vegum ríkisins. Ritari forsetaembættisins segir einu skráðu reglurnar sem gilda um forsetaembættið vera stjórnarskrá Íslands. Svanur Kristjánsson, stjórnmálafræðingur, sem hefur skrifað um forsetaembættið, segir fordæmin ekki mörg hérlendis þar sem fyrrverandi forsetar hafi tekið svo einarða afstöðu. Forverar Vigdísar hafi ekki verið jafnlanglífir og hún eftir að þeir létu af embætti. Hins vegar sé það ekki óþekkt, til dæmis í Bandaríkjunum, að fyrrverandi forseti gagnrýni stjórnvöld og er þar skemmst að minnast viðtals við Bill Clinton á Fox sjónvarpsstöðinni fyrr í vikunni þar sem hann gagnrýndi framgöngu núverandi forseta. Einnig hafi Jimmy Carter látið mikið til sín taka á sviði alþjóðastjórnmála síðan hann lét af embætti fyrir 25 árum síðan.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ Innlent Fleiri fréttir Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Sjá meira