Upplýsingum verði safnað 30. júní 2006 07:15 dr. niels bracke og björn bjarnason við kynningu á skýrslunni Bracke segir að þótt lítið sé um glæpi á Íslandi og löggæslan fámenn þá sé nauðsynlegt að Þjóðaröryggisdeild sé starfandi til að safna upplýsingum um möguleg hryðjuverk.
Skipan Þjóðaröryggisdeildar er meðal þess sem lagt er til í nýrri skýrslu um hryðjuverkavarnir sem kynnt var í gær. Hlutverk deildarinnar væri að afla upplýsinga um hryðjuverk og aðra glæpi á fyrirbyggjandi stigi, eða áður en til þeirra kemur. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti skýrsluna á blaðamannafundi í gær ásamt dr. Niels Bracke, sem er annar tveggja sérfræðinga Evrópusambandsins í lögreglu- og hryðjuverkamálum sem unnu skýrsluna. Í skýrslunni er vakin athygli á því að hér á landi séu engar reglur um beitingu sérstakra rannsóknarúrræða, einkum fyrirbyggjandi, sem öryggisþjónustur annarra landa beiti venjulega áður en til opinberrar rannsóknar komi, og því séu fyrirbyggjandi aðgerðir óheimilar að íslenskum lögum. Mælst er til þess að ný Þjóðaröryggisdeild innan embættis ríkislögreglustjóra sé stofnuð, undir yfirumsjón dómsmálaráðuneytisins. "Til þess að geta tekist á við mögulegar uppákomur er nauðsynlegt að fá upplýsingar fyrirfram svo hægt sé að koma í veg fyrir þær áður en þær gerast. Annars er hætt við að þær verði löggæslunni ofviða, sérstaklega í landi eins og Íslandi þar sem lögreglan er tiltölulega fámenn," segir dr. Bracke svipaðar deildir löggæslunnar í Þýskalandi hafi komið í veg fyrir uppákomur fótboltabullna vegna heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Aðspurður um hvort einhver þörf sé í raun fyrir slíka deild á Íslandi þar sem hér hafi aldrei verið framin hryðjuverk sagði Björn að mikilvægt sé að læra af reynslu annarra þjóða í þessum málum til þess að hægt sé að koma í veg fyrir slík atvik ef þau skyldu gerast. "Ef menn vilja bíða eftir einhverju og skamma stjórnvöld síðan fyrir að hafa ekki gert neitt þá er það ákveðið viðhorf, en ég hef ekki það viðhorf." Settur hefur verið á laggirnar starfshópur sem hefur það hlutverk að vinna úr tillögum skýrslunnar. Unnið er að því að semja drög að löggjöf um fyrirbyggjandi verkefni og störf deildarinnar ásamt heimildum hennar og takmörkum. Einnig á eftir að ákveða hvernig eftirliti með deildinni verður hagað, en ljóst er að verkefni hennar geta skarast á við persónuvernd og friðhelgi einkalífs.
Innlent Mest lesið Halla slær á putta handboltahetjunnar Innlent Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands Erlent Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Innlent Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Erlent Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Erlent „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ Innlent Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Erlent Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Innlent „Ég á þetta og má þetta“ Innlent „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Innlent Fleiri fréttir Ósammála um hvort lögregla hafi gefið fyrirmæli „Ég á þetta og má þetta“ „Það er ekki hægt að muna allan þennan djöful“ Nauðgaði konu og reyndi að færa henni blóm daginn eftir Hvalveiðimótmælin fyrir dóm og Danir segja ekkert samið um Grænland Húsleit fór fram víðar en á Akureyri Halla slær á putta handboltahetjunnar „Ég framkvæmdi þetta af algjörri nauðsyn“ „Sama hvað gerist þá sigra hvalirnir“ Ósammála um hvort Heiða sé „atvinnupólitíkus“ Kjósendur Flokks fólksins ekki fyrir framan tölvu alla daga Ölvaður og árásargjarn handtekinn í verslunarmiðstöð Viðurkenni nú að hafa beitt Íslendinga efnahagslegri hernaðaraðgerð Algjörlega óásættanleg staða Sveitarstjórnin og Penninn Eymundsson saman í eina sæng Þjóðaröryggisráð boðað til fundar Skýrsla Félagsbústaða kolsvört Formaður Sjálfstæðisflokksins fer yfir þunga stöðu Hættu við lendingu í miðju aðflugi Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Unnu að því að stofna „Vélfag 2.0“ og tölvur með teikningum fjarlægðar Drógu dauðan hval lengst út í hafsauga Segir gagnrýni minnihlutans til þess gerða að dreifa athygli Nú má heita Friðálv Gletting Lucíuson Náðu sex byssum úr byssuskáp á Akureyri Parísarheimsókn fjárlaganefndar „mjög fróðleg“ Með 29 kíló af maríjúana í töskunum Brúnni yfir Helluvatn lokað í fimm vikur Stjórnarformaður Vélfags handtekinn í aðgerðum saksóknara „Það er ekki laust við að það fari um mann“ Sjá meira