Afhending Sjónlistarorðunnar 22. september 2006 09:00 Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir Hönnuður Hannar einstaka hluti með möguleikum fjöldaframleiðslu og leiðir saman tölvuskurðartækni og hefðbundið handverk. Er tilnefnd fyrir húsgagnalínurnar Inner Beauty og Flat Pack Antiques.
Sjónlistarorðan 2006 verður afhent í kvöld við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri. Sjónlist er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Forms Ísland samtaka hönnuða og Sambands íslenskra myndlistarmanna. Markmið verkefnisins er að veita verðlaun á sviði sjónlista og beina þannig sjónum að framúrskarandi framlagi myndlistarmanna og hönnuða starfandi á Íslandi og íslenskra sjónlistamanna erlendis, stuðla að aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi almennings að sjónlistum og hvetja til faglegrar þekkingarsköpunar og bættra starfsmöguleika sjónlistamanna á Íslandi. Sex listamenn eða hópar listamanna sem starfa að jafnaði saman hljóta tilnefningu á tveimur sviðum; myndlist og hönnun, fyrir framlag sitt til greinarinnar á tólf mánaða tímabili frá mars 2005. Allir hönnuðir og myndlistarmenn sem sýnt hafa verk sín á tímabilinu eða kynnt þau með öðrum hætti koma til greina við tilnefninguna. Að þessu sinni eru myndlistarmennirnir Hildur Bjarnadóttir, Katrín Sigurðardóttir og Margrét H. Blöndal tilnefndar fyrir myndlist en Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir og arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer tilnefnd fyrir hönnun. Sýning á verkum þeirra hefur staðið yfir í Listasafninu á Akureyri. Tilkynnt verður um úrslitin í kvöld en auk Sjónlistarorðunnar hljóta verðlaunahafarnir tveir peningaverðlaun að upphæð 2.000.000 kr. hvor. Sérstök heiðursorða Sjónlistar verður einnig afhent í kvöld en stefnt er að því að veita hana árlega. Í tengslum við Sjónlist 2006 verður efnt til málþings kl. 11 á morgun í Ketilhúsinu. Markmið þess er að skapa tengsl við þá orðræðu sem á sér stað á alþjóðavettvangi um málefni sem varða sjónlistir. Málþingið mun taka til skoðunar verðlaun af þessu tagi á sviði sjónlista, tví- og þríæringa og aðrar stórsýningar og alþjóðlega viðburði sem hafa það að markmiði að vekja athygli á og miðla þekkingu um myndlist og hönnun. Meðal annars verður fjallað um það að hverjum sú þekkingarmiðlun beinist og hvers listamenn, skipuleggjendur og almenningur geta vænst af slíkum viðburðum. Fundarstjóri verður Fríða Björk Ingvarsdóttir, menningarritstjóri Morgunblaðsins.
Menning Mest lesið „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Zendaya sást í miðbænum Lífið Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu Lífið Ólafur Darri og Hera Hilmars halda áfram að heilla heiminn Bíó og sjónvarp Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Lífið Sumarleg og saðsöm salöt Lífið Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Lífið Fleiri fréttir Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Krakkatían: Leðurblökumaðurinn, Elli Egils og 17. júní Eitt lag með eiginmanninum varð að vínylplötu „Eini maðurinn sem er bókaður í golf undir dauðahótunum“ Íslensk áhöfn tekur þátt í endurvakningu Pan Am Þingkonur hlutu blessun Leós páfa Bregðast við bakslagi með Hinsegin Hrísey Fréttatía vikunnar: Fálkaorður, friðlýsing og húðflúr Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Færa Vestur-Íslendingum rausnarlega afmælisgjöf Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Sjá meira