Lífið

Afhending Sjónlistarorðunnar

Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir Hönnuður Hannar einstaka hluti með möguleikum fjöldaframleiðslu og leiðir saman tölvuskurðartækni og hefðbundið handverk. Er tilnefnd fyrir húsgagnalínurnar Inner Beauty og Flat Pack Antiques.
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir Hönnuður Hannar einstaka hluti með möguleikum fjöldaframleiðslu og leiðir saman tölvuskurðartækni og hefðbundið handverk. Er tilnefnd fyrir húsgagnalínurnar Inner Beauty og Flat Pack Antiques.

Sjónlistarorðan 2006 verður afhent í kvöld við hátíðlega athöfn í Ketilhúsinu á Akureyri. Sjónlist er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Forms Ísland samtaka hönnuða og Sambands íslenskra myndlistarmanna. Markmið verkefnisins er að veita verðlaun á sviði sjónlista og beina þannig sjónum að framúrskarandi framlagi myndlistarmanna og hönnuða starfandi á Íslandi og íslenskra sjónlistamanna erlendis, stuðla að aukinni þekkingu, áhuga og aðgengi almennings að sjónlistum og hvetja til faglegrar þekkingarsköpunar og bættra starfsmöguleika sjónlistamanna á Íslandi.

Sex listamenn eða hópar listamanna sem starfa að jafnaði saman hljóta tilnefningu á tveimur sviðum; myndlist og hönnun, fyrir framlag sitt til greinarinnar á tólf mánaða tímabili frá mars 2005. Allir hönnuðir og myndlistarmenn sem sýnt hafa verk sín á tímabilinu eða kynnt þau með öðrum hætti koma til greina við tilnefninguna.

Að þessu sinni eru myndlistarmennirnir Hildur Bjarnadóttir, Katrín Sigurðardóttir og Margrét H. Blöndal tilnefndar fyrir myndlist en Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir og arkitektarnir Margrét Harðardóttir og Steve Christer tilnefnd fyrir hönnun. Sýning á verkum þeirra hefur staðið yfir í Listasafninu á Akureyri.

Tilkynnt verður um úrslitin í kvöld en auk Sjónlistarorðunnar hljóta verðlaunahafarnir tveir peningaverðlaun að upphæð 2.000.000 kr. hvor. Sérstök heiðursorða Sjónlistar verður einnig afhent í kvöld en stefnt er að því að veita hana árlega.

Í tengslum við Sjónlist 2006 verður efnt til málþings kl. 11 á morgun í Ketilhúsinu. Markmið þess er að skapa tengsl við þá orðræðu sem á sér stað á alþjóðavettvangi um málefni sem varða sjónlistir. Málþingið mun taka til skoðunar verðlaun af þessu tagi á sviði sjónlista, tví- og þríæringa og aðrar stórsýningar og alþjóðlega viðburði sem hafa það að markmiði að vekja athygli á og miðla þekkingu um myndlist og hönnun. Meðal annars verður fjallað um það að hverjum sú þekkingarmiðlun beinist og hvers listamenn, skipuleggjendur og almenningur geta vænst af slíkum viðburðum. Fundarstjóri verður Fríða Björk Ingvarsdóttir, menningarritstjóri Morgunblaðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.