Hljóðheimur fortíðar 29. júlí 2006 15:00 Kati Debretzeni Leikur með Bachsveitinni í Skálholti í dag. Mynd/berglind maría Tómasdóttir
Fiðluleikarinn Kati Debretzeni leiðir Bachsveitina á Sumartónleikum í Skálholti í dag þar sem flutt verða verk eftir Locatelli, Quantz og Mozart. Þetta er í annað sinn sem Debretzeni kemur hingað til að leika í Skálholti en í vikunni gerði hún stormandi lukku ásamt Bachsveitinni þegar þau fluttu Árstíðir Vivaldis. "Við flytjum flautukonsert eftir Locatelli þar sem Martial Nardeau leikur einleikshlutverkið en hann er einmitt eini barokkflautuleikarinn sem búsettur er á Íslandi. Síðan flytjum við tvö stutt verk eftir Quantz og verk eftir Mozart en þar leikur Skálholtskvartettinn sólóhlutann." Debretzeni mun flytja aðfararorð að dagskránni kl. 15 í dag enda er forvitnilegt fyrir tónleikagesti að kynna sér samhengi og hljóðheim verkanna áður en á þau er hlýtt. "Margir af tónlistarmönnunum hafa rannsakað upprunaleg barokkhljóðfæri og leika á þau," útskýrir Debretzeni hluti sérstöðu Skálholtshátíðarinnar felst í því að þar er leitast við að flytja tónverk í sinni upprunalegu mynd. Debretzeni segir að hljómur barokkhljóðfæra sé mjög frábrugðinn hljóðfærum nútímans, til dæmis heyrist milliraddir skýrar og heildarmyndin sjálf vísi sterkar til mannsraddarinnar. "Tónskáld þessa tíma voru undir áhrifum frá mælskulistinni þegar þeir sömdu verk sín," segir hún og áréttar að bogar strengjahljóðfæra frá þessum tíma séu einkar sérstakir. Debretzeni ferðast mikið vegna vinnu sinnar og hefur aðeins stutta viðdvöl hérlendis í þetta skipti. Hún lætur þess getið að henni finnist stemningin í Skálholti einstök. "Þessi hátíð er mjög frábrugðin öðrum tónlistarhátíðum því nándin og samveran er svo mikil. Hér búum við saman og fylgjumst að allan tímann og það er frábært tækifæri og tilbreyting fyrir mig." Tvennir tónleikar fara fram í Skálholti í dag en kl. 17 leikur Skálholtskvartettinn strengjakvartetta Mozarts en þeir verða síðan endurteknir á morgun kl. 15. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni www.sumartonleikar.is.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira