Fékk Elle Macpherson í heimsókn um helgina 28. júlí 2006 14:00 Tekjuhæsta ofurfyrirsæta heims Elle Macpherson var stödd hér á landi um helgina og er það víst ekki í fyrsta sinn. MYND/Gettyimages "
Elle Macpherson var hér á landi um helgina í fríi og hafði samband við mig til að spjalla. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hún kemur hingað," segir Georg Guðni Hauksson myndlistarmaður. Hann vill þó lítið tjá sig um samskipti sín við fyrirsætuna. Georg Guðni og Elle þekkjast síðan hann hélt myndlistarsýningu í Los Angeles í janúar og hreifst hún af málverkum hans og festi kaup á einu þeirra. Georg Guðni hefur oft verið kallaður bjargvættur íslenska landslagsmálverksins og vakið mikla athygli fyrir falleg landslagsmálverk hérlendis og erlendis. Á döfinni hjá honum eru bæði sýningar og bókaútgáfa. "Það eru erlendir aðilar í Þýskalandi sem eru að undirbúa bók um mig og list mína sem kemur út þar í landi bráðlega." Georg Guðni býr og starfar í Reykjavík og hefur haldið fjölda einkasýninga bæði hér heima og á erlendum vígstöðvum. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Jan Van Eyck Akademie í Maastricht á árunum 1985-1987. Georg hlaut Menningarverðlaun DV árið 1988 og hefur verið úthlutað listamannalaunum samtals fjórum sinnum. Elle Macpherson er leikkona og ofurfyrirsæta sem hefur haft gælunafnið Kroppurinn. Hún er áströlsk að uppruna og hefur verið á forsíðum allra helstu tískutímarita heims enda talin tekjuhæsta ofurfyrirsæta síns tíma ásamt Naomi Campell, Cindy Crawford og Christy Turlington. Einnig hefur hún komið fram í fjöldanum öllum af bíómyndum á borð við Sirens, Jane Eyre og If Luck Fell en einnig sást hún í nokkrum þáttum af sjónvarpsþáttaröðinni vinsælu Vinum eða Friends þar sem hún lék meðleigjanda Joey. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Georg Guðni kemst í kynni við stórstjörnur því þegar leikarinn Viggo Mortensen var staddur hér á landi heillaðist hann einnig af landslagsmálverkum hans. Viggo gaf út bók sem heitir "Strange Familiar" með verkum Georgs Guðna í vor og einnig hafa þeir haldið sýningu saman í Los Angeles.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira