Lækka lán og fresta framkvæmdum 28. júní 2006 08:00 aðgerðir til að draga úr þenslu Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Geir H. Haarde forsætisráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra kynntu aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að draga úr þenslu eftir ríkisstjórnarfund í gær. Þetta mun róa vinnumarkaðinn. Það þarf að kæla hann aðeins niður, segir forsætisráðherra um áhrifin. MYND/stefán
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka lánshlutfall úr 90 prósentum í 80 prósent og hámarkslán Íbúðalánasjóðs úr 18 milljónum króna í 17 milljónir frá 1. júlí. Lán til íbúðakaupenda og húsbyggjenda verða takmörkuð þannig að sami aðili geti ekki átt samtímis fleiri en eina íbúð með lánum frá sjóðnum nema við sérstakar aðstæður. Ríkisstjórnin hefur einnig ákveðið að fresta útboðum og nýjum framkvæmdum á vegum ríkisins og óskar eftir viðræðum við forystumenn Sambands íslenskra sveitarfélaga og stærstu sveitarfélög landsins með það að markmiði að draga úr fjárfestingum þeirra á þessu ári og næsta ári. Stór samstarfsverkefni ríkisins og Reykjavíkurborgar verða skoðuð sérstaklega. "Allt sem hér verður boðið út lendir í frestun en ekki þar með sagt að hætt sé við framkvæmdir. Það er bara verið að ýta þeim á undan sér þangað til þróunin skýrist betur," segir Geir H. Haarde forsætisráðherra og bætir við að fyrst og fremst sé um vegaframkvæmdir að ræða og einhverjar húsbyggingar á vegum ríkisins. "Allt sem búið er að semja um mun halda áfram." Geir telur að umfang aðgerðarinnar fari eftir því hvað komi út úr viðræðum við sveitarfélögin. Hjá ríkinu nemi framkvæmdirnar tæpum þremur milljörðum króna. Árni Mathiesen fjármálaráðherra bendir á að umfang framkvæmda sveitarfélaganna á þessu ári sé nánast jafn mikið og hjá ríkinu þannig að "þátttaka sveitarfélaganna getur haft veruleg áhrif". Hjá Íbúðalánasjóði er þegar byrjað að hægja þar á en þetta mun væntanlega flýta þeirri þróun," segir Geir og kveðst ekkert geta sagt um vaxtastigið en miðað við þróunina undanfarið sé líklegra að vextir hækki en lækki. Geir telur ákvörðun ríkisstjórnarinnar ekki hafa bein áhrif á hátæknisjúkrahús og Sundabraut. Bygging Tónlistarhúss verði rædd við Reykjavíkurborg og þá komi í ljós hvort hægt sé að fresta henni "en við höfum það mál ekki á valdi okkar," segir Geir. "Þetta eru mjög tímanlegar aðgerðir í samhengi við samningana í síðustu viku," segir Jón Sigurðsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra telur að með þessu sé mikilvægt skref stigið á bremsuna.
Innlent Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Sjá meira