Ferill Gibsons í hættu 4. ágúst 2006 15:00 Sniðgengur verk Gibsons Hin virta fréttakona, Barbara Walters, lýsti því yfir á ABC að hún hygðist sniðganga öll verk Gibsons hér eftir. MYND/Getty Images
Að undanförnu hefur verið greint frá máli Mels Gibson en hann var handtekinn fyrir nokkru vegna undarlegs aksturlags. Í ljós kom að Gibson var ölvaður en leikarinn hefur átt við áfengisvandamál að stríða. Gibson hefur nú verið formlega ákærður fyrir að hafa ekið ölvaður og að vera með opna áfengisflösku í bílnum. Gibson var hins vegar ekki kærður fyrir of hraðan akstur en hann var tekin á 137 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 70. Ef leikarinn verður sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsi en mál Gibsons hefur vakið gríðarlega athygli um allan heim, ekki síst vegna þeirra ummæla sem leikarinn lét falla á meðan á handtökunni stóð. Samkvæmt AP fréttastofunni er Gibson sagður hafa lýst því yfir í heyranda hljóði að gyðingar væru ábyrgir fyrir öllum stríðum í heiminum. Síðan á leikarinn að hafa spurt lögregluþjóninn: "Ert þú gyðingur?" Gibson sagði í yfirlýsingu sinni að hann væri alls ekki á móti gyðingum því hatur gengi gegn trú hans en leikarinn er meðlimur í mjög strangtrúuðum kaþólskum söfnuði. Hann bað einnig samtök gyðinga afsökunar og vonaðist til að þau myndu hjálpa honum aftur á rétta braut. Málið er allt hið vandræðalegasta fyrir óskarsverðalaunahafann Mel Gibson enda eru gyðingar meðal valdamestu manna í Hollywood. Fréttavefur BBC greinir frá því í netútgáfu sinni að þessi ummæli gætu sett stórt strik í reikninginn hjá Gibson enda hefði hann leikið sér ansi mikið með eldinn þegar kvikmyndin The Passion of the Christ var frumsýnd. Þar þótti Gibson sýna helst til of mikið af þætti gyðinga í dauða Jesú. Jafnframt eru mjög viðkvæmir tímar fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem Ísraelsher reynir nú að ganga milli bols og höfuðs á Hizbollah-samtökunum í Líbanon við misjafnar undirtektir alþjóðasamfélagsins. "Mér finnst ótrúlega svekkjandi að maður í þessari stöðu skuli láta svona út úr sér þegar ástandið er jafn viðkvæmt," sagði Amy Pascal, formaður kvikmyndadeildar Sony Columbia fyrirtækisins, í samtali við The Los Angeles Times. Hin virta sjónvarpsfréttakona Barbara Walters lýsti því yfir á ABC að hún hygðist sniðganga verk Gibsons og framleiðandinn Peter Bart, sem færði heiminum Hefnd nördanna 2, sagði að Gibson hefði stofnað ferli sínum í hættu. Jerry Weintraub, framleiðandi Oceans-mynda George Clooney, sagðist líða illa yfir þessu máli og að hann fyndi til með Gibson. "Ég er virkilega vonsvikinn," bætti hann við. Engu að síður fékk Gibson mikinn stuðning frá Oren Aviv, forseta markaðsdeildar Buena Vista kvikmyndafyrirtækisins, sem sagði að öllum yrði einhvern tímann á í lífinu. "Ég hef móttekið afsökunarbeiðni frá Mel Gibson og óska honum velfarnaðar í bata sínum," sagði Aviv en það er einmitt Buena Vista sem dreifir nýjustu mynd Mels Gibson, Apocalypto.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira