Erlent

Nýir ráðherrar skipaðir í Stokkhólmi

MYND/Wikipedia

Fredrik Reinfeldt tilkynnti nú rétt í þessu hverjir taki við ráðherrasætunum sem stóðu auð í rúmlega þriggja vikna gamalli ríkisstjórn hans. Hin hófsama Lena Adelsohn Liljeroth tekur við embætti menntamálaráðherra og samflokksmaður hennar Sten Tolgfors mun stýra viðskiptaráðuneytinu. Þetta er í samræmi við það sem sænskir fjölmiðlar höfðu spáð.

Reinfeldt tilkynnti þetta á blaðamannafundi í ráðherrabústaðnum Rosenbad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×