Konur hertaka mýrarboltann 9. ágúst 2006 14:00 Allt í drullu Mýraboltinn er feykilega vinsæll í Finnlandi og vinsældir hans virðast hafa ratað uppá Ísland en um næstu helgi fer fram óformlegt Evrópumeistaramót í greininni. MYND/Sólveig
Það stefnir í metþátttöku hjá okkur, segir Óli Karlsson, formaður Mýrarboltafélags Íslands, en um næstu helgi fer fram óformlegt Evrópumeistaramót í þessari sérstæðu útfærslu af vinsælustu íþrótt heims í Tungudal á Ísafirði. Ég er reyndar ekki með staðfesta tölu en mér skilst að liðin séu orðin vel yfir tuttugu, bætir Óli við. Mýrarboltinn á ættir sínar að rekja til Finnlands þar sem finnski herinn og síðar landsliðið í skíðagöngu voru látin hlaupa í mýrum. Til að gera æfinginguna enn skemmtilegri var farið að sparka í bolta en nú er svo komið að þessi íþrótt er orðin ein sú allra vinsælasta þar í landi. Heimsmeistaramótið er haldið í Finnlandi og þar keppa yfir 270 lið en þetta er einn stærsti íþróttaviðburður Finnlands, segir Óli. Reglurnar eru mjög áþekkar því sem flestir þekkja frá knattspyrnunni en það er engin rangstaða og þá er hæfilegur tuddaskapur leyfilegur. Mótið er hið þriðja í rððinni en það var fyrst haldið árið 2004. Að þessu sinni stefnir allt í að konur verði áberandi á mótinu og segist Óli hafa heimildir fyrir því að kvennalið frá Súðavík stundi nú æfingar af kappi. Strákarnir þurfa því að girða sig í brók ef þeir vilja ekki verða undir í ár, bætir hann við en auk Evrópumeistaratitilsins verða veitt verðlaun fyrir drullugasta leikmanninn og flottasta búninginn. Mýrarboltafélagið stefnir ótrautt að því að gera þennan viðburð enn stærri og segir Óli að hugmyndin sé að færa mótið yfir á verslunarmannahelgina að ári. Þá séu einnig hugmyndir um að markaðssetja mótið erlendis en þeir vilji þó fyrst selja hugmyndina enn betur hér á landi áður en sú útrás hefst. Við höfum reyndar heyrt af því að danskt lið hafi skráð sig til leiks núna, segir Óli.
Menning Mest lesið Mikil sorg á Alþingi Lífið Hvað hafa þau að fela? Lífið Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Tónlist Samstarfsfélagar að elskhugum Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Lífið Emily in Paris-stjarna látin Lífið Snúa aftur á byrjunarreit: „Það þekkir enginn rassinn á mér eins vel og Addi“ Tónlist Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Fleiri fréttir Mikil sorg á Alþingi Samstarfsfélagar að elskhugum Bústaðarferð með vinum endaði á óvæntri trúlofun Fyrsta BBQ- og reykmatarhátíðin í Kolaportinu um helgina Emily in Paris-stjarna látin Hvað hafa þau að fela? Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Sjá meira