Segja hryðjuverk skilgreind of vítt 2. júlí 2006 06:45 DR. niels bracke og björn bjarnason kynntu skýrsluna á fimmtudag Starfshópur hefur verið settur á laggirnar til að vinna úr skýrslunni. MYND/GVA
Talsvert hefur verið um gagnrýni á nýja skýrslu sérfræðinga Evrópusambandsins um hryðjuverkavarnir á Íslandi, sem dómsmálaráðherra kynnti á fimmtudaginn. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir megináhyggjuefnið vera hversu víðtæk skilgreining hugtaksins hryðjuverk sé á Íslandi. „Hugtakið hefur ekki verið skilgreint í alþjóðalögum og íslenska skilgreiningin hefur sætt harðri gagnrýni af hálfu mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna vegna þess hversu víðtæk hún er. Það er hægt að fella nánast hvað sem er undir hryðjuverk. Ég tel að skýrsluhöfundar hafi ekki verið meðvitaðir um þetta atriði.“ Ragnar segir þetta skipta miklu máli vegna þess að eftir því sem skilgreining á hryðjuverkum verður víðtækari, því víðtækara verður vald öryggislögreglu til að fella undir sitt starfssvið sem flesta þætti þjóðlífsins. „Verði þessar hugmyndir að lögum verður verulega þrengt að mannréttindum á Íslandi.“ Ragnar segir hryðjuverk vera framin til að koma á framfæri sjónarmiðum og tilgangurinn sé að hafa áhrif. „Í skýrslunni kemur fram að aðild að Atlantshafsbandalaginu geti aukið líkur á hryðjuverkum hér en ég er ósammála því. Aðallega vegna þess að Ísland er ekki með eigin her og hefur ekki nema að óverulegu leyti tekið þátt í hernaði.“ Ragnar telur líkur á hryðjuverkum hérlendis verulega litlar og ef til þeirra kæmi þá myndi svona deild engu máli skipta. Guðrún D. Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, segir mikilvægt að hafa samræmi milli aðgerða og nauðsynjar. „Mikið hefur borið á gagnrýni í alþjóðasamfélaginu á að vegið sé að mannréttindum í skjóli svokallaðrar hryðjuverkaógnar. Um leið og farið er að tala um auknar heimildir til eftirlits með borgurunum verður að stíga mjög varlega til jarðar.“ Guðrún bendir á að í skýrslunni komi fram að Ísland sé ekki á meðal aðalskotmarka alþjóðlegrar hryðjuverkastarfsemi. „En einn sérfræðinganna leggur þó til að hér verði stofnuð 25 til 30 manna þjóðaröryggisdeild. Ég tel alltof mikla áherslu lagða á hryðjuverkavarnir á kostnað raunverulegra vandamála á borð við fíkniefnamisferli eða mansal. Guðrún deilir áhyggjum með Ragnari yfir of víðtækri skilgreiningu á hryðjuverkum. „Ég vona sannarlega að hér á landi leiðum við ekki í lög of víðtækar takmarkanir á frelsi borgaranna og friðhelgi einkalífsins í skjóli baráttu gegn hryðjuverkum.
Innlent Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Sjá meira