Engin sérstök náttúrufegurð í landinu sem sekkur! 17. maí 2006 18:49
Nú eru aðeins fjórir mánuðir í það að byrjað verði að safna vatni í lón Kárahnjúkavirkjunar og fer því hver að verða síðastur til að sjá það land sem fer á kaf. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir að engin sérstök náttúrufegurð sé í landinu sem hverfi undir lónið. Kárahnjúkastífla, stærsta mannvirki Íslands, er óðum að fá á sig mynd og vantar nú aðeins um 30 metra upp á að hún nái sinni endanlegu 200 metra hæð. Stíflan hefur það meginhlutverk að stöðva rennsli Jökulsár á Dal um sinn gamla farveg og mynda miðlunarlón fyrir innan, Hálslón, sem verður vatnsforðabúr Kárahjúkavirkjunar, en frá lóninu verður vatninu veitt um 40 kílómetra löng jarðgöng að stöðvarhúsi í Fljótsdal. Guðmundur Pétursson, yfirverkefnisstjóri Landsvirkjunar, segir stíflugerðina á áætlun og stefnt að því að byrjað verði að fylla í lónið í september í haust. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra var meðal gesta sem fóru um virkjunarsvæðið á dögunum. Hún segist fyrir löngu hafa gert það upp við sig að það sé réttlætanlegt að sökkva landinu sem fer undir Hálslón vegna þess framkvæmdin breyti miklu fyrir Austurland og landið í heild. Hún segir ekki sanngjarnt hvernig fólk meti þetta án þess að hafa séð svæðið. Það sé ekki hægt að tala um að það sé eitthvað sérstök náttúrufegurð sem fari undir lónið, þegar horft sé á landið í heild.
Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fleiri fréttir Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Sjá meira