Fjallað um Ísland í rússnesku morgunsjónvarpi 19. maí 2006 13:30 MYND/Valgarður
Fjallað verður um Geysi, álfa og íslenska náttúru í rússnesku morgunsjónvarpi á næstu vikum. Annar aðalstjórnenda þáttarins hefur verið hér á landi ásamt tökuliði að kynna sér land og þjóð og ber hvoru tveggja vel söguna. Sjónvarpsmenn frá morgunþættinum Góðan daginn, Rússland sem sýndur er á rússnesku stöðinni Rossiya hafa verið hér síðustu vikuna og gert víðreist um Suður- og Vesturland. Þeir fóru meðal annars á Snæfellsjökul og ræddu við íbúa á Vesturlandi um álfatrú ásamt því að kynna sér borgarlífið í Reykjavík. Hópurinn segist hafa verið mjög heppinn með veður enda hafi sólin skinið alla daga. En ferðin að Gullfossi og Geysi er þeim minnisstæðust. Anastacia Chernobrovina, annar stjórnenda rússneska morgunþáttarins, segir að þar hafi þau náð einstökum myndum af gosi úr hver á Geysissvæðinu. Hann hafi gosið þrisvar á mjög skömmum tíma og það hafi verið stórfengleg sjón. Þýskir sjónvarpsmenn hafi verið á svæðinu á svipuðum tíma en þeir hafi ekki náð nærri því jafngóðum myndum. Þetta hafi verið mikil upplifun. Morgunþátturinn er í beinni í Rússlandi frá fimm til níu á morgnana en þar sem útsendingarnar ná til fjölmargra tímabelta stendur hann í raun yfir í tólf tíma og því hefur þátturinn verið tilnefndur í Heimsmetabók Guinness sem lengsti morgunþátturinn í sjónvarpi. Íslandsheimsóknin var einnig liður í því að kanna hvernig fólk víða um heim fer á fætur og því liggur beint við að spyrja hvernig Íslendingar koma gestunum fyrir sjónir. Anastacia segir að þau hafi haldið að Íslendingar væru sem norræn þjóð mjög hlédrægir. Hins vegar hafi þau komist að því að Íslendingar séu mjög vingjarnlegir, opinskáir og afslappaðir og ljóst sé að þeir kunni að meta náttúruna. Dvölin hér hafi því verið góð og þau telji sig hafa verið mjög heppin með efnið sem þau náðu úr ferðinni. Sex innslög um Ísland verða unnin fyrir morgunþáttinn og verða þau sýnd yfir vikutíma.
Fréttir Innlent Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Innlent Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Innlent Fleiri fréttir „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Sjá meira