Landsleikur jaðarpoppara 27. júlí 2006 12:00 Emilíana Torrini ætlar að reyna fyrir sér í fótbolta í dag.
Skoska hljómsveitin Belle and Sebastian og íslenska hljómsveitin múm munu efna til knattspyrnuleiks í dag. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hljómsveitirnar reyna fyrir sér í knattspyrnu en Belle and Sebastian lagði múm að velli með tíu mörkum gegn átta í framlengdum leik sem fram fór í Japan fyrir þremur árum. "Við höfum stillt þessu upp sem hálfgerðum landsleik, Ísland á móti Skotlandi. En þar sem þau eru bara fjögur úr Belle and Sebastian hér á landi býst ég við að við lánum þeim nokkra leikmenn. Svo held ég að Emilíana Torrini og hljómsveit ætli líka að spila með," segir Kristín Valtýsdóttir, meðlimur múm. Auk Emilíönu Torrini og félaga ætlar litli bróðir Kristínar að spila með sem og vinur hans. "Litli bróðir minn heitir Jónas og er níu ára. Hann er búinn að panta að fá að vera fyrirliði í öðru hvoru liðinu," segir Kristín sem veit þó ekki hvort hægt sé að kalla múm-liða íþróttamenn. "Við erum stundum uppátækjasöm og ef það má flokka það undir íþróttir erum við kannski íþróttamenn." Síðast þegar liðin áttust við hafði múm betur eftir venjulegan leiktíma. Hljómsveitarmeðlimum þótti leikurinn hins vegar svo skemmtilegur að þeir ákváðu að framlengja og þá unnu meðlimir Belle and Sebastian. "Þannig að það hefur eiginlega aldrei fengist úr því skorið hverjir unnu leikinn," segir Kristín. Leikurinn í Japan fór fram um kvöld og tók eina þrjá tíma. Leikvöllurinn var lýstur upp með ljóskastara og hljóp sumum leikmanna Múm svo mikið kapp í kinn þegar lið þeirra lenti undir að þeir renndu sér jafnvel í háskalegar tæklingar. "Stundum er gaman að taka óalvarlegum hlutum alvarlega og öfugt - taka alvarlegum hlutum óalvarlega," segir Kristín sposk en auk knattspyrnunnar reyndu hljómsveitirnar með sér í fatafrisbí þar sem leikmenn þurftu að fækka fötum ef þeir misstu flugdiskinn sem þeir köstuðu á milli sín. Ekki er búið að ákveða hvar eða hvenær leikurinn í dag verður. "Kannski spilum við bara á einhverjum velli úti á Ægissíðu en það verða engir flottir búningar eða svoleiðis," segir Kristín, knattspyrnukona með meiru.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira