Lífið

Deilt á réttarkerfið með konfekti og kærleika

Ármann Reynisson deilir á réttarkerfið í væntanlegri vinjettubók og að hætti sannra fagurkera býður hann nú lesendum sínum að kaupa handgert vinjettukonfekt og sérblandað kaffi með bókunum.
Ármann Reynisson deilir á réttarkerfið í væntanlegri vinjettubók og að hætti sannra fagurkera býður hann nú lesendum sínum að kaupa handgert vinjettukonfekt og sérblandað kaffi með bókunum. MYND/Vilhelm

Rithöfundurinn og athafnamaðurinn Ármann Reynisson sendir frá sér sína sjöttu vinjettubók um þessar mundir. Vinjettur eru örstuttar, myndrænar frásagnir og spruttu upp sem bókmenntaform í Frakklandi á 17. öld.

Ármann hefur rutt þessari gömlu bókmenntagrein braut í íslenskum bókmenntum og undirtektir lesenda hafa verið það góðar að hann kynnir nú til sögunnar vinjettu munaðarvörulínu sem hann tengir beint við skáldverk sín.

„Fólki sem les bækurnar mínar finnst upplagt að fá sér kaffi og konfekt í leiðinni og þaðan kom hugmyndin um þennan munaðarvarning," segir Ármann sem býður nú áskrifendum bóka sinna að kaupa handgert konfekt, sérblandað kaffi og silfur mokka- og desertskeiðar.

„Mér finnst allt vera orðið svo venjulegt og langaði að koma með eitthvað sérstakt á markaðinn. Ég leitaði til færustu íslensku framleiðenda á hverju sviði og vann svo að hugmyndinni í samvinnu við þá. Hugmyndin er svo að bæta við vöruflokkinn á hverju ári. Ég hef þegar fengið góð viðbrögð við þessu og ef vel gengur gæti verið gaman að fylgja þessu eftir erlendis."

Ármann er þegar farinn að sækja á erlendan markað og hann segir tvítyngda vinjettubók sem hann gaf út í Þýskalandi nýlega vera farna að spyrjast ágætlega út. „Ég er bjartsýnismaður og set hlutina af stað og læt svo lífið um að ráða því hvað gerist."

Ármann byggir oftar en ekki ekki á eigin reynslu í vinjettum sínum og í nýju bókinni gefur hann íslensku réttarfari gaum en hann fékk sjálfur að kynnast því þegar hann stóð í málaferlum tengdum fjármálafyrirtækinu Ávöxtun. „Nokkrar sögurnar fjalla um þetta en Baugsmálið rak mig beinlínis út í að skrifa um fólkið sem starfar í réttarkerfinu. Embættisfólkið gerir jafnvel mistök eins og við hin en það er aldrei kallað til ábyrgðar og látið svara fyrir þau. Ég hvet fólk til að kynna sér þetta nánar og veita þessu fólki aðhald enda er ómögulegt að segja hvar þetta endar ef aðhaldið er ekkert. Ég fékk gott tækifæri til þess að kryfja þessar persónur í Ávöxtunarmálinu og það nýtist mér nú. Flestir þeir sem ég kynntist þá eru enn í fullu fjöri en þeir kváðu mig ekki í kútinn þar sem ég lifnaði tvíefldur við og fór að skrifa um þetta fólk. Ég nýti reynsluna til þess að opna augu fólks fyrir umhverfinu og er alltaf að glíma við fjölbreytileika tilverunnar."

Ármann ætlar að fagna útkomu nýju bókarinnar og vinjettuvarningnum með vinjettudegi í Iðu við Lækjargötu á laugardaginn. „Ég tók upp á því að halda vinjettudag í fyrra en þá fæ ég þekkta borgara til að koma og lesa upp vinjettur á hálftíma fresti. Hver les tvær sögur og er innan við tíu mínútur að því. Á milli upplestra gefst fólki kostur á að tala saman og njóta veitinga. Ég hugsa þetta sem nútíma sagnaskemmtun og það það skapast skemmtileg baðstofustemning þegar þessi háttur er hafður á."

Ármann hefur sjálfur lesturinn klukkan 13 en útvarpskonan Andrea Jónsdóttir tekur við af honum. Síðan kemur hver upplesarinn á fætur öðrum fram eftir degi en Árni Johnsen, fyrrverandi alþingismaður, rekur lestina og les tvær vinjettur þegar degi fer að halla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.