Lífið

Tregablandin lífsgleði

fabúla Þriðja plata Fabúlu, Dusk, er komin út. Einkennist hún að tregablandinni lífsgleði.fréttablaðið/valli
fabúla Þriðja plata Fabúlu, Dusk, er komin út. Einkennist hún að tregablandinni lífsgleði.fréttablaðið/valli

Tónlistarkonan Fabúla, sem heitir réttu nafni Margrét Kristín Sigurðardóttir, hefur gefið út sína þriðju plötu, Dusk.

Margrét Kristín segir að nýja platan einkennist af tregablandinni leikgleði þar sem takist á miklar andstæður. „Ég er svolítið upptekin af þessum andstæðum í lífinu, eins og þránni okkar eftir ástríðu, ólgu og breytingum samhliða þörfinni fyrir ró og jafnvægi,“ segir Margrét Kristín, sem síðast gaf út plötuna Kossafar á ilinni fyrir fimm árum.

Hvað varðar nafnið Dusk segir Margrét að hugmyndin að því hafi spunnist út frá myndinni á umslagi plötunnar. Nafnið eigi líka vel við þar sem ljós og skuggar skiptist á í lífinu, auk þess sem rökkrið sé sá tími dagsins sem er í mestu uppáhaldi hjá henni.

Dusk er samstarfsverkefni þeirra Margrétar, Birkis Rafns Gíslasonar gítarleikara og Jökuls Jörgenssen bassaleikara. Einnig koma þau Sigtryggur Baldursson, Júlía Mogensen, Sarah Fogg, Dan Cassidy, Finnbogi Óskarsson, KK og Axel Árnason fram á plötunni.

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég er að semja með öðrum og það var auðveldara en ég hélt og gerðist bara að sjálfu sér,“ segir Margrét, sem áður leit á tónlistarsköpun sína sem mjög persónulegan hlut. „Ég upplifði fyrir tveimur árum að þetta væri hægt, þ.e. að semja með öðrum. Ég upplifði það sem skemmtilega reynslu og eitthvað nýtt sem væri gaman að prófa.“ Fór Margrét ásamt nokkrum úr samstarfshópnum í sumarbústaðarferð á Flúðir þar sem allir grunnarnir voru teknir upp. Fyrir vikið fékk platan á sig meira lifandi yfirbragð en ella.

Margrét ætlar að reyna að spila sem mest á næstunni til að fylgja plötunni eftir. Mun hún m.a. halda tónlieka á Café Rósenberg þann 26. október. Útgáfutónleikar eru síðan fyrirhugaðir í Tjarnarbíói þann 24. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.