Tregablandin lífsgleði 4. október 2006 12:15 fabúla Þriðja plata Fabúlu, Dusk, er komin út. Einkennist hún að tregablandinni lífsgleði.fréttablaðið/valli
Tónlistarkonan Fabúla, sem heitir réttu nafni Margrét Kristín Sigurðardóttir, hefur gefið út sína þriðju plötu, Dusk. Margrét Kristín segir að nýja platan einkennist af tregablandinni leikgleði þar sem takist á miklar andstæður. „Ég er svolítið upptekin af þessum andstæðum í lífinu, eins og þránni okkar eftir ástríðu, ólgu og breytingum samhliða þörfinni fyrir ró og jafnvægi,“ segir Margrét Kristín, sem síðast gaf út plötuna Kossafar á ilinni fyrir fimm árum. Hvað varðar nafnið Dusk segir Margrét að hugmyndin að því hafi spunnist út frá myndinni á umslagi plötunnar. Nafnið eigi líka vel við þar sem ljós og skuggar skiptist á í lífinu, auk þess sem rökkrið sé sá tími dagsins sem er í mestu uppáhaldi hjá henni. Dusk er samstarfsverkefni þeirra Margrétar, Birkis Rafns Gíslasonar gítarleikara og Jökuls Jörgenssen bassaleikara. Einnig koma þau Sigtryggur Baldursson, Júlía Mogensen, Sarah Fogg, Dan Cassidy, Finnbogi Óskarsson, KK og Axel Árnason fram á plötunni. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég er að semja með öðrum og það var auðveldara en ég hélt og gerðist bara að sjálfu sér,“ segir Margrét, sem áður leit á tónlistarsköpun sína sem mjög persónulegan hlut. „Ég upplifði fyrir tveimur árum að þetta væri hægt, þ.e. að semja með öðrum. Ég upplifði það sem skemmtilega reynslu og eitthvað nýtt sem væri gaman að prófa.“ Fór Margrét ásamt nokkrum úr samstarfshópnum í sumarbústaðarferð á Flúðir þar sem allir grunnarnir voru teknir upp. Fyrir vikið fékk platan á sig meira lifandi yfirbragð en ella. Margrét ætlar að reyna að spila sem mest á næstunni til að fylgja plötunni eftir. Mun hún m.a. halda tónlieka á Café Rósenberg þann 26. október. Útgáfutónleikar eru síðan fyrirhugaðir í Tjarnarbíói þann 24. nóvember.
Menning Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Útför Björgvins opin almenningi Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Fleiri fréttir Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Sjá meira