Ævintýri sem stenst tímans tönn 23. september 2006 17:00 Guðjón Davíð Karlsson og Ólafur steinn Ingunnarson í hlutverkum sínum Leikritið um Karíus og Baktus verður frumsýnt norðan heiða í dag en þeirra saga gegnir lykilhlutverki í baráttunni fyrir bættri tannhirðu. Mynd/Leikfélag Akureyrar
Íslensk börn þekkja mæta vel örlög félaganna Karíusar og Baktusar en boðskapur ævintýris þeirra á samt alltaf við. Í dag frumsýnir Leikfélag Akureyrar nýja uppfærslu á barnaleikritinu kunna, sem er sérsniðið að allra yngstu leikhúsgestunum. Þó eru það ekki eingöngu börnin sem fagna sögunni sígildu, heldur hampar ein fagstétt henni hærra en aðrir og höfundinum ekki síður. Sigurður Rúnar Sæmundsson tannlæknir sérhæfir sig í tannlækningum barna. Hann segir að skjólstæðingum sínum verði tíðrætt um þá félaga og að sagan um Karíus og Baktus gegni sérstöku hlutverki í baráttunni fyrir bættri tannhirðu. „Tannskemmdir heita Karíus og Baktus upp að vissum aldri og börnin tala mikið um þá. Margar sögur sem fjalla um tennur og tannlækningar vekja ótta hjá börnum en þessi saga virðist ekki gera það - þótt þetta séu óttaleg örlög sem þeir hljóta er sagan svo fallega sett upp að krakkarnir verða ekki hræddir.“ Hann bætir því við að starfsfélagar hans í Noregi hafi á sínum tíma gert Thorbjörn Egner að heiðursfélaga í norska Tannlæknafélaginu. „Það lýsir kannski best afstöðu tannlæknastéttarinnar,“ segir hann. Sagan um Karíus og Baktus hefur að sögn fylgt Sigurði frá barnsaldri og hann man enn eftir tannburstanum stóra sem þeytti þeim köppum út í sjó - og af leiksviðinu. „Ég hef verið um tíu ára gamall og þetta atriði er mér enn mjög minnisstætt,“ segir Sigurður og kímir en vill þó ekki viðurkenna að verkið hafi haft áhrif á starfsframann. Leikritið Karíus og Baktus verður frumsýnt í Rýminu hjá Leikfélagi Akureyrar í dag. Leikstjóri er Ástrós Gunnarsdóttir.
Menning Mest lesið Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Lífið Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Lífið Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Lífið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Fleiri fréttir Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Sjá meira