Frumlegur og flottur fararskjóti Loga Bergmanns 21. september 2006 12:15 Í góðu standi Tengdafaðir Loga tók hjólið upp á sína arma og gerði það upp.
Logi Bergmann sjónvarpsmaður vakti mikla athygli þegar hann kom á dögunum, flottari en nokkru sinni, brunandi til vinnu á vægast sagt frumlegum fararskjóta. Þetta er einhvers konar millistig reiðhjóls og mótorhjóls reiðhjól með mótor MoPed. Þetta er Miele sem flestir þekkja sem framleiðanda eldhústækja núna. Miele framleiddi mótorhjól í gamla daga. Þetta hjól var búið til 1954, segir Logi sem hafnar því ekki að vera nokkur dellumaður þegar flottir fararskjótar eru annars vegar. Hann hefur til dæmis átt þrjá Porsche bíla. Nú er ég hættur í þeirri deild. Nú er það bara hjólið, segir Logi. Hann fann skemmtilega gamla auglýsingu fyrir Miele mótor-reiðhjólið á veraldarvefnum en þar er einkum reynt að höfða til sveitalækna í litlum þorpum. Þessi fararskjóti sé alveg gráupplagður fyrir slíka. Og Loga. Ég kemst alveg í svona 40 kílómetra hraða. Hef náð 50 á góðum degi. En 40 kílómetra hraði er þægilegur ferðahraði á svona hjóli. Best að fara ekki of geist. Loga áskotnaðist þessi merki gripur nánast fyrir tilviljun fyrir um þremur árum. Þá var hjólið í algerum lamasessi, ryðgað og óökuhæft, en völundurinn Valur Hólm, tengdafaðir Loga, tók það upp á sína arma. Og gerði það upp, pússaði og sprautaði. Valur þekkir til því sjálfur átti hann mótor-reiðhjól í gamla daga en þá voru slíkir gripir ekki eins fáséðir og er í dag. Logi segir Miele-hjólið sitt eingöngu notað þegar vel viðrar og þá spari. Og þrætir ekki fyrir að hann veki nokkra athygli þar sem hann fer. Jú, og margir vilja kaupa hjólið en það er ekki til sölu.
Menning Mest lesið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Lífið Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Lífið Stóri skandallinn, óvæntir sigurvegarar og ótvíræð taplið Menning Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Lífið „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Lífið Geralt fær nýtt ævintýri rúmum áratug eftir það síðasta Leikjavísir Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni Lífið Hver prjónuð peysa sendi skýr skilaboð til þolenda ofbeldis Tíska og hönnun Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Lífið Fleiri fréttir Þingmönnum skyndilega bannað að hanga í stiganum við matsalinn Hvað veistu um… Björgvin Halldórsson? Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Tvíburar sem búa saman, lærðu það sama og eignuðust börn á sama tíma Skrautlegt einvígi á Vistabella á Spáni „Af hverju er ég að leita í eitthvað svona ljótt?“ Frumkvöðull selur elegant íbúð í 101 Kveðjustund í ráðhúsinu Þegar yfirvöld gengust við fljúgandi furðuhlutum Óhefðbundið leynivopn Helgu Sigrúnar Nálægðin við dauðann gjörbreytti ferlinum Gói Sportrönd og Tinna selja í Hveragerði Móðurhlutverkið næst á dagskrá hjá Þóreyju Stjörnulífið: Berir að ofan í brúðkaupi Stórstjörnur tróðu upp í útskriftarveislum Verzlinga Áslaug lék eftir útskriftarpósu móður sinnar Draumabrúðkaup Gerðar við Garda-vatn Stjúpur og fjólur það heitasta Þeir lofuðu rokki en afhentu rækjusamloku á Þingvöllum „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Grafinn í sand í sólarhring Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð „Við erum bara tvö eftir“ Afi snýr aftur á litla sviði Þjóðleikhússins Allir fárveikir eftir tónlistarmyndband Helgi Björns og Ragga Gísla ætla að trylla lýðinn með tali og tónum „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Tilkynntu óvart dauða konungsins Sjá meira