Lífið

Fyrst kuklað svo þuklað

Hólmavík Landsmót hagyrðinga er að þessu sinni haldið á Hólmavík en venjan er að nýr landsfjórðungur hýsi mótið á hverju ári og er farið sólsinnis um landið.
Hólmavík Landsmót hagyrðinga er að þessu sinni haldið á Hólmavík en venjan er að nýr landsfjórðungur hýsi mótið á hverju ári og er farið sólsinnis um landið. MYND//Jón Jónsson

Árlegt Landsmót hagyrðinga er haldið á Hólmavík um helgina og má þar búast við að hundruð manna og kvenna leggi leið sína á Strandir til að yrkjast á.

„Menn eru hvattir til að mæta. Þetta eru afskaplega skemmtilegar samkundur,“ segir Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum og félagsmaður í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Fyrir ári var landsmótið haldið á Hótel Sögu í Reykjavík og er nú komið að Vestfjörðunum að halda mótið í ár. „Landsmótið er haldið í nýjum landsfjórðungi hvert ár og er farið sólsinnis um landið. Landsmótin eru farin að nálgast tuttugu núna og var það fyrsta haldið á Skagaströnd,“ útskýrir Sigurður.

Mótið verður á laugardaginn og er haldið í félagsheimilinu á Hólmavík. Það hefst klukkan hálf níu og er dagskráin í höndum Strandamanna og þar verður íslenskt lambakjöt í öndvegi. Gísli Einarsson er siðameistari en heiðursgestur er Bjarni Guðleifsson á Möðruvöllum. Sigurður segir að landsmótið verði að öðru leyti með hefðbundnu sniði. „Munu menn yrkjast á og þarna verður söngur, kveðskapur og dans langt fram á nótt,“ bætir hann við.

Aðspurður um hvernig dagskráin gangi venjulega fyrir sig segir Sigurður að hún byggist upp á skemmtun og kveðskap þar sem skemmtilegar vísur verða oft til. „Heiðursgesturinn heldur aðalræðu kvöldsins um kveðskap og þessa fornu kúnst að geta ort vísur. Síðan spretta menn á fætur og fara með vísur, helst ekki áður fluttar og allra helst búnar til á staðnum. Svo ljóða þeir á aðra sem verða að svara fyrir sig. Þarna verður líka kveðið, því Kvæðamannafélagið verður með stóran hóp sem flytur kvæðalög.“

Á hverju ári koma nokkur hundruð manna á landsmótið og segir Sigurður að Kvæðamannafélagið keyri úr Reykjavík með yfir yfir fjörutíu manns saman í rútu, og ætli að gera víðreist á leið sinni á landsmót. „Við förum vestur að Borgarnesi, upp Mýrar og Heydal, inn með Skógarströnd, austur Dali, og förum um Reykhólahrepp þar sem við stoppum og kveðum fyrir gamla fólkið í Barmahlíð,“ segir Sigurður. Nóg verður um að vera á Hólmavík um helgina þar sem meðal annars er haldið meistaramót í hrútaþukli. „Við byrjum daginn á kukli og endum á þukli,“ segir Sigurður og hlær við.

Allir eru velkomnir á Landsmót hagyrðinga, hvort sem þeir ætla sér að yrkja sjálfir eða fylgjast með. Enn er tími til að skrá þátttöku og kostar fjögur þúsund krónur inn á mótið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.