Fyrst kuklað svo þuklað 25. ágúst 2006 11:30 Hólmavík Landsmót hagyrðinga er að þessu sinni haldið á Hólmavík en venjan er að nýr landsfjórðungur hýsi mótið á hverju ári og er farið sólsinnis um landið. MYND//Jón Jónsson
Árlegt Landsmót hagyrðinga er haldið á Hólmavík um helgina og má þar búast við að hundruð manna og kvenna leggi leið sína á Strandir til að yrkjast á. „Menn eru hvattir til að mæta. Þetta eru afskaplega skemmtilegar samkundur,“ segir Sigurður Sigurðarson, dýralæknir á Keldum og félagsmaður í Kvæðamannafélaginu Iðunni. Fyrir ári var landsmótið haldið á Hótel Sögu í Reykjavík og er nú komið að Vestfjörðunum að halda mótið í ár. „Landsmótið er haldið í nýjum landsfjórðungi hvert ár og er farið sólsinnis um landið. Landsmótin eru farin að nálgast tuttugu núna og var það fyrsta haldið á Skagaströnd,“ útskýrir Sigurður. Mótið verður á laugardaginn og er haldið í félagsheimilinu á Hólmavík. Það hefst klukkan hálf níu og er dagskráin í höndum Strandamanna og þar verður íslenskt lambakjöt í öndvegi. Gísli Einarsson er siðameistari en heiðursgestur er Bjarni Guðleifsson á Möðruvöllum. Sigurður segir að landsmótið verði að öðru leyti með hefðbundnu sniði. „Munu menn yrkjast á og þarna verður söngur, kveðskapur og dans langt fram á nótt,“ bætir hann við. Aðspurður um hvernig dagskráin gangi venjulega fyrir sig segir Sigurður að hún byggist upp á skemmtun og kveðskap þar sem skemmtilegar vísur verða oft til. „Heiðursgesturinn heldur aðalræðu kvöldsins um kveðskap og þessa fornu kúnst að geta ort vísur. Síðan spretta menn á fætur og fara með vísur, helst ekki áður fluttar og allra helst búnar til á staðnum. Svo ljóða þeir á aðra sem verða að svara fyrir sig. Þarna verður líka kveðið, því Kvæðamannafélagið verður með stóran hóp sem flytur kvæðalög.“ Á hverju ári koma nokkur hundruð manna á landsmótið og segir Sigurður að Kvæðamannafélagið keyri úr Reykjavík með yfir yfir fjörutíu manns saman í rútu, og ætli að gera víðreist á leið sinni á landsmót. „Við förum vestur að Borgarnesi, upp Mýrar og Heydal, inn með Skógarströnd, austur Dali, og förum um Reykhólahrepp þar sem við stoppum og kveðum fyrir gamla fólkið í Barmahlíð,“ segir Sigurður. Nóg verður um að vera á Hólmavík um helgina þar sem meðal annars er haldið meistaramót í hrútaþukli. „Við byrjum daginn á kukli og endum á þukli,“ segir Sigurður og hlær við. Allir eru velkomnir á Landsmót hagyrðinga, hvort sem þeir ætla sér að yrkja sjálfir eða fylgjast með. Enn er tími til að skrá þátttöku og kostar fjögur þúsund krónur inn á mótið.
Menning Mest lesið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Lífið „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Þorgerður brák grafin úr gleymsku Lífið Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Fleiri fréttir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Sjá meira