Traustur Innipúki að vanda 9. ágúst 2006 09:00 Innipúkinn Frábær stemning var meðal áhorfenda. Íslensku listamennirnir voru þeir sem héldu hátíðinni uppi að þessu sinni. MYND/Daníel
Innipúkinn í ár leið að nokkru fyrir það hversu frábær hátíðin var í fyrra. Eitthvað mikið þurfti að gerast til þess að hægt yrði að toppa hátíðina á síðasta ári og eins og við var að búast tókst það ekki. Hátíðin var samt sem áður frábær í alla staði og í raun er hálf ósanngjarnt að miða hátíðina í ár við fyrirrenna sinn. Því miður verður samt að segjast að mestu vonbrigðin voru erlendu gestirnir. Television lenti reyndar í nokkrum vandræðum með hljóð en virtist samt sem áður þreytt uppi á sviði og nær áhugalaus. Í nokkrum lögum náði sveitin þó ágætis flugi en þau augnablik voru því miður of fá. Throwing Muses var hins vegar mun skárri en Television, þétt og vel spilandi. Kristin Hersh, söngkona og gítarleikari sveitarinnar, var gífurlega örugg í öllum sínum aðgerðum og í raun hálf ógnvekjandi. Hersh hafði geysilega gott vald yfir rödd sinni en hið hrjúfa yfirborð raddar Hersh var alveg hreint magnað að hlusta á. Hinir erlendu gestirnir skildu lítið eftir sig. Íslensku listamennirnir voru þess vegna þeir sem héldu hátíðinni upp að þessu sinni. Of tímafrekt væri hins vegar að fara yfir frammistöðu þeirra allra en þessi frábæra frammistaða segir margt um gæði íslensks tónlistarlífs. Þó hefði mátt haga uppröðinni á sveitunum á annan hátt. Þekkt „partí-bönd“ á borð við Donna Mess, Nortón og Hermigervill þurftu öll að sætta sig við að spila mjög snemma auk þess sem salurinn var nær tómur, þar sem lang flestir tónleikagesta mættu ekki fyrr en þeir voru allavega búnir að fá sér í aðra tána í heimahúsum. Innipúkinn er samt rækilega búinn að stimpla sig inn í íslenska tónlistarmenningu og því hlýtur það að vera ósk allra að þessi frábæra hefð haldist við, þó að það væri ekki nema bara til þess að gefa fólki fleiri valkosti varðandi verslunarmannahelgina. Stemningin er alltaf einstök og að fá alla þessa frábæru tónlistarmenn beint í æð er gjöf af guðs náð.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Menning „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira