Lífið

Ferill Gibsons í hættu

Sniðgengur verk Gibsons Hin virta fréttakona, Barbara Walters, lýsti því yfir á ABC að hún hygðist sniðganga öll verk Gibsons hér eftir.
Sniðgengur verk Gibsons Hin virta fréttakona, Barbara Walters, lýsti því yfir á ABC að hún hygðist sniðganga öll verk Gibsons hér eftir. MYND/Getty Images

Að undanförnu hefur verið greint frá máli Mels Gibson en hann var handtekinn fyrir nokkru vegna undarlegs aksturlags. Í ljós kom að Gibson var ölvaður en leikarinn hefur átt við áfengisvandamál að stríða.

Gibson hefur nú verið formlega ákærður fyrir að hafa ekið ölvaður og að vera með opna áfengisflösku í bílnum. Gibson var hins vegar ekki kærður fyrir of hraðan akstur en hann var tekin á 137 kílómetra hraða þar sem leyfilegur hámarkshraði er 70. Ef leikarinn verður sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsi en mál Gibsons hefur vakið gríðarlega athygli um allan heim, ekki síst vegna þeirra ummæla sem leikarinn lét falla á meðan á handtökunni stóð.

Samkvæmt AP fréttastofunni er Gibson sagður hafa lýst því yfir í heyranda hljóði að gyðingar væru ábyrgir fyrir öllum stríðum í heiminum. Síðan á leikarinn að hafa spurt lögregluþjóninn: "Ert þú gyðingur?" Gibson sagði í yfirlýsingu sinni að hann væri alls ekki á móti gyðingum því hatur gengi gegn trú hans en leikarinn er meðlimur í mjög strangtrúuðum kaþólskum söfnuði. Hann bað einnig samtök gyðinga afsökunar og vonaðist til að þau myndu hjálpa honum aftur á rétta braut.

Málið er allt hið vandræðalegasta fyrir óskarsverðalaunahafann Mel Gibson enda eru gyðingar meðal valdamestu manna í Hollywood.

Fréttavefur BBC greinir frá því í netútgáfu sinni að þessi ummæli gætu sett stórt strik í reikninginn hjá Gibson enda hefði hann leikið sér ansi mikið með eldinn þegar kvikmyndin The Passion of the Christ var frumsýnd. Þar þótti Gibson sýna helst til of mikið af þætti gyðinga í dauða Jesú. Jafnframt eru mjög viðkvæmir tímar fyrir botni Miðjarðarhafs þar sem Ísraelsher reynir nú að ganga milli bols og höfuðs á Hizbollah-samtökunum í Líbanon við misjafnar undirtektir alþjóðasamfélagsins.

"Mér finnst ótrúlega svekkjandi að maður í þessari stöðu skuli láta svona út úr sér þegar ástandið er jafn viðkvæmt," sagði Amy Pascal, formaður kvikmyndadeildar Sony Columbia fyrirtækisins, í samtali við The Los Angeles Times. Hin virta sjónvarpsfréttakona Barbara Walters lýsti því yfir á ABC að hún hygðist sniðganga verk Gibsons og framleiðandinn Peter Bart, sem færði heiminum Hefnd nördanna 2, sagði að Gibson hefði stofnað ferli sínum í hættu. Jerry Weintraub, framleiðandi Oceans-mynda George Clooney, sagðist líða illa yfir þessu máli og að hann fyndi til með Gibson. "Ég er virkilega vonsvikinn," bætti hann við.

Engu að síður fékk Gibson mikinn stuðning frá Oren Aviv, forseta markaðsdeildar Buena Vista kvikmyndafyrirtækisins, sem sagði að öllum yrði einhvern tímann á í lífinu. "Ég hef móttekið afsökunarbeiðni frá Mel Gibson og óska honum velfarnaðar í bata sínum," sagði Aviv en það er einmitt Buena Vista sem dreifir nýjustu mynd Mels Gibson, Apocalypto.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.