Lífið

Hvað er Gibson að gera með Apocalypto?

Mel Gibson
Lögreglan í Malibu gaf út þessa mynd af Gibson skömmu eftir handtökuna. Leikstjórinn er nú í óða önn að klára stórmynd sína Apocalypto.
Mel Gibson Lögreglan í Malibu gaf út þessa mynd af Gibson skömmu eftir handtökuna. Leikstjórinn er nú í óða önn að klára stórmynd sína Apocalypto. MYND/Getty Images

Stórleikarinn Mel Gibson hefur verið mikið í fréttum að undanförnu eftir að hann var handtekinn, ölvaður undir stýri. Gibson hefur lengi háð baráttu við Bakkus og því um nokkuð áfall fyrir bæði Gibson og fjölskyldu hans. Þá hafa niðrandi ummæli hans um gyðinga einnig valdið þó nokkrum titringi innan kvikmyndaheimsins enda hafa gyðingar lengi verið áhrifamikill hópur innan Hollywood.

Gibson hefur verið á fullu við að klára stórmynd sína Apocalypto sem er leikinn á hinu forna máli Maya - indjánanna. Leikstjórinn hefur ekkert viljað gefa upp um söguþráð myndarinnar ef undanskilið er að hún inniheldur mannrán á ungum manni, flóttatilraun hans og að það verði mjög pólitískur undirtónn í henni.

Gibson var í viðtali við kvikmyndatímaritið Empire þar sem hann tjáði sig í fyrsti skipti um gerð þessarar myndar. „Ég held að það sé ákveðin þrá eftir einhverju sem ekki er fyrirfram gefið,“ segir Gibson en upphaflega var gert ráð fyrir að myndin yrði frumsýn nú í sumar. Henni hefur verið frestað til að geta átt betri möguleika þegar tilefningar til Óskarsverðlaunanna verða kunngjörðar.

„Sumarið hefur verið stútfullt af framhaldsmyndum og fyrirsjáanlegum hlutum en ég vill sýna kvikmyndahúsagestum eitthvað algjörlega öðruvísi, eitthvað sem kveikir í mér,“ segir Mel og bætir því við að þótt allar persónur tali maya - tungumálið sé lítið um talað mál í myndinni. „Frásögnin byggist á myndmálinu og frábærri kvikmyndatónlist,“ segir Gibson sem virðist vera ákaflega sáttur við það sem hann hafi í höndunum. „Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.