X-Faktor tekur við af Idolinu í vetur 2. ágúst 2006 10:00
X-Faktor tekur við af Idol á dagskrá Stöðvar 2 í vetur. Fólki á öllum aldri er heimil þátttaka og sönghópar eru boðnir velkomnir. Einar Bárðar og Páll Óskar verða í dómnefnd ásamt Ellý í Q4U. „Fyrstu áheyrnarprufur verða í ágúst og september og við skorum á alla, einstaklinga og hópa, á hvaða aldri sem er til að mæta og taka þátt," segir Heimir Jónasson dagskrárstjóri Stöðvar 2. Þær breytingar verða á dagskrá stöðvarinnar næsta vetur að Idolið fer í frí en í staðinn kemur nýr söng- og skemmtiþáttur, X-Faktor. Maðurinn á bakvið X-Faktor er Idoldómarinn alræmdi, Simon Cowell. Þættirnir hafa verið sýndir tvo síðustu vetur í Bretlandi við miklar vinsældir. Þriggja manna dómnefnd verður í X-Faktor. Hún er skipuð þeim Einari Bárðarsyni og Páli Óskari Hjálmtýssyni sem báðir eru kunnir fyrir störf sín í Idolinu. Þriðji meðlimur dómnefndarinnar er svo pönkdrottningin Elínborg Halldórsdóttir, betur þekkt sem Ellý í Q4U. Henni mun ætlað að feta í fótspor Sharon Osbourne sem vakið hefur mikla eftirtekt í breska X-Faktor. Þegar Fréttablaðið ræddi við Ellý í gær var hún ekki alveg viss um þessa samlíkingu: „Mig vantar alla vega Ozzie, ég á engan kall," sagði Ellý og hló. Hún hefur síðustu árin starfað mikið við tónlistarkennslu á Akranesi þar sem hún er búsett. Ellý er alls ekki smeyk við að hefja störf í sjónvarpi. „Nei, mér finnst það ekkert skrítið, mér finnst það eiginlega ekkert mál." Kynnir í X-Faktor verður leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir. Sá grundvallarmunur er á Idolinu og X-Faktor að aldurinn skiptir engu máli í síðarnefndu þáttunum. Allir hafa jafnan rétt til þátttöku og sönghópar eru jafn velkomnir og einstaklingar. Auk þess gefst þátttakendum líka tækifæri til að sýna færni sína á hljóðfæri og að koma eigin lagasmíðum á framfæri. „Það sem mér finnst einna mest spennandi við X-Faktor er barátta dómaranna," segir Heimir Jónasson. „Í byrjun vinna þau saman að því að velja fólk og skipta því í hópa. Svo verður þeim úthlutað hópum og þau fara að berjast með sínu fólki um það hver vinnur. Þetta er í sjálfu sér kjarninn í X-Faktor, að þau eru líka eins og umboðsmenn fyrir sitt fólk." Sýningar á X-Faktor hefjast í nóvember en fram að því verður strangur undirbúningur hjá Stöð 2. Áheyrnarprufur hefjast seinna í mánuðinum og verða þær væntanlega vel auglýstar þegar þar að kemur.Heimasíða X-faktor í Bretlandi
Menning Mest lesið „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Lífið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Lífið Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Lífið „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Lífið Fleiri fréttir „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Sjá meira