Lífið

Aukin aðsókn í hundabað

Löður rekur hundaþvottastöð samhliða bílaþvottastöð sinni í Stekkjabakka.
Löður rekur hundaþvottastöð samhliða bílaþvottastöð sinni í Stekkjabakka. MYND/Hörður

Stöðin er búin að vera starfrækt í eitt og hálft ár og aðsóknin er alltaf að aukast, segir Vilhelm Guðjónsson, vaktstjóri hjá Löðri ehf., sem starfrækir hundaþvottastöð samhliða bílaþvottastöð sinni í Stekkjabakka. Þetta er ætlað hundaeigendum sem hafa ekki aðstöðu til að þrífa hundana heima hjá sér enda getur það uppskorið mikið vatnssull. Í Löðri eru gallar og svuntur fyrir hundaeigendur að klæðast að meðan þeir þrífa loðnu félögum sínum.

Á stöðinni er hin fínasta aðstaða með stórum bala, heitu vatni, góðu sjampói, hárnæringu og jafnvel einu besta flóasjampói sem völ er á. Einnig er hárblásari til að hita og þurrka hundunum eftir þvottinn.

Þetta er engin snyrtistofa. Þarna eiga hundaeigendur bara að geta þvegið hundunum sínum á fljótlegan og einfaldan hátt í notalegu rými. Ein mínúta kostar 100 krónur og er sjálfsali sem telur niður tíman þannig að stöðin er opin allan sólarhringinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.