Sparrow er mættur aftur 26. júlí 2006 08:00 Bruckheimer Framleiðandi sem hefur einstakt nef fyrir því hvað kvikmyndahúsagestir vilja sjá og matreiðir það á einstakan hátt.
Talið var að Pirates of the Carabbean: Dead Mans Chest myndi njóta mikillar velgengni á þessu sumri en tímaritið Newsweek gekk jafnvel svo langt að spá henni sigri í kapphlaupi kvikmyndaveranna um smell sumarsins. Sú spá virðist vera ganga eftir en myndin er frumsýnd í dag. Jack Sparrow náði með naumindum að bjarga sér frá Barbossa og félögum hans á Svörtu Perlunni en fortíðin hefur ekki sagt skilið við þennan klóka skipstjóra. Sæskrímslið Davy Jones telur sig eiga smá skuld inni hjá Sparrow, nefnilega sál sjóræningjans. Þetta smávægilega vandamál Sparrow dregur bæði Will Turner og Elisabeth Swann aftur inní heim ævintýra sem setur smá strik í reikninginn hvað varðar brúðkaup þeirra tveggja. Þar að auki er Lord Cutler Beckett staðráðinn í að komast yfir Kistu Dauða Mannsins sem færir honum yfirráð yfir Davy Jones en þannig getur hann útrýmt sjóræningjastéttinni á einu bretti. Þau Johnny Depp, Orlando Bloom og Keira Knightley er aftur mætt til leiks eftir að hafa sigrað heimsbyggðina fyrir þremur árum síðan. Gore Verbinski situr í leikstjórastólnum á ný en skipstjóri skútunnar er að sjálfsögðu framleiðandinn Jerry Bruckheimer. Bruckheimer hefur ætíð haft nef fyrir því hvað kvikmyndahúsagestir hafa áhuga á að sjá þótt gagnrýnendur hafi oft horn í síðu hans. 48 Hours, The Rock og Con Air eru allt kvikmyndir sem hafa gert góða hluti í miðasölunni en Bruckheimer er auk þess hugmyndasmiðurinn á bakvið sjónvarpsþættina vinsælu CSI sem sýndir hafa verið við miklar vinsældir hér á landi. Bruckheimer hefur sinn eigin stíl; hægar, dramatískar senur undir ljóðrænum fiðlutónum auk hasaratriða sem eiga engan sinn líkan. Atriði sem minna um margt á tónlistarmyndbönd MTV og fjölmargir hasarmyndaleikstjórar hafa apað eftir. Enginn gerir þetta þó betur en Bruckheimer. Þegar framleiðandinn sagðist ætla að gera sjóræningjamynd byggða á skemmtitæki í Disney garðinum voru margir sem hlógu að honum og töldu að nú hefði Bruckheimer endanlega misst vitið. Hann vissi hins vegar alveg hvað hann var að gera og sannfærði Johnny Depp um að taka hlutverk Jack Sparrow að sér. Depp hefur ekki verið þekktur fyrir að leika hlutverk í smellum heldur einbeitir sér frekar að furðulegum einstaklingum sem koma flestum spánskt fyrir sjónir. Einhverjir í kvikmyndaborginni hafa skellt uppúr þegar Bruckheimer sagðist ætla að fá Depp til liðs við sig en öllum að óvörum sagði leikarinn já, kynnti sér hreyfingar og talsmáta gítarleikarans Keith Richards og úr varð persóna sem flestum er ógleymanleg enda var Depp tilnefndur til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn ( sem segir kannski meira um Óskarsverðlaunin en Depp því þetta er eingungis önnur tilnefningin sem þessi magnaði leikari fær). Bruckheimer veðjaði á réttan hest með því að leggja allt sitt traust á sjóræningjana í Karabíska hafinu. Nýjasta myndin malar gulli í kvikmyndahúsum og sú þriðja er í vinnslu en hún á eftir að vekja enn meiri athygli því þar leikur sjálfur Keith Richards föður Jack Sparrow.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira