Lífið

Menn og hugmyndir

Steinunn Sigurðardóttir tekur þátt í samsýningu í London.
Steinunn Sigurðardóttir tekur þátt í samsýningu í London. MYND/Daníel

Listakonan Steinunn Þórarinsdóttir tekur þátt í samsýningu á vegum gallerísins Osborne Samuel í London en hún ber yfirskriftina "Heads, Figures and Ideas". Yfirskriftin vísar til samnefndar bókar sem listamaðurinn Henry Moore gaf út árið 1958.

Steinunn sýnir skúlptúra sína ásamt átta öðrum listamönnum sem allir eiga það sameiginlegt að fást við ímyndir mannslíkamans og innra líf hans. Flest verkanna eru fígúratív en þar eru bæði þrívíð verk, teikningar og málverk.

Sýningin er opin til ágústloka.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.