Öll rúm full og tjaldað í görðum 25. júlí 2006 12:00 Þeir Þröstur Árnason og Ásgrímur Ingi Arngrímsson voru í óða önn að koma tónleikahúsinu Bræðslunni í stand um helgina. Á annað þúsund gestir verð á tónleikum Belle & Sebastian á laugardagskvöldið. MYND/Heiða „
Það búa 150 manns hér á svæðinu og við búumst við að það verði á annað þúsund manns um næstu helgi þegar allt er talið. Okkur líst bara vel á að fá alla þessa gesti, þetta verður mjög skemmtilegt," segir Áskell Heiðar Ásgeirsson, sem sér um skipulagningu tónleika skosku hljómsveitarinnar Belle & Sebastian á Borgarfirði eystri um næstu helgi. Tónleikarnir verða haldnir í Bræðslunni sem er gömul skemma sem hefur verið gerð upp. „Hún hafði verið notuð sem ruslakompa í áratugi en við breyttum henni í tónleikahöll í fyrrasumar," segir Áskell Heiðar og vísar þar til tónleika Emilíönu Torrini í fyrrasumar. Hún leikur einmitt með Belle & Sebastian á tónleikunum á laugardag. Miðar á tónleikana seldust upp fyrir nokkrum vikum, jafnvel þó endurbætur hafi verið gerðar á Bræðslunni og fleiri komist þar inn en í fyrra. Áskell Heiðar segir að undirbúningur fyrir tónleikana hafi staðið síðustu sex mánuðina. Á meðan Grímur Atlason hafi tekið að sér að koma listamönnunum til Íslands hafi hann séð um að koma öllum gestum fyrir. „Það verður hvert rúm vel nýtt og tjaldað í öllum görðum," segir Áskell. Hefð virðist vera að myndast fyrir tónleikahaldi á Borgarfirði eystri og segir Áskell að bæjarbúar séu þegar vissir um hvern þeir vilja fá þangað næsta sumar. „Ætli við reynum ekki að fá hann Magna okkar á næsta ári, með eða án Supernova," segir Áskell en svo skemmtilega vill til að Magni er bróðir hans.
Menning Mest lesið „Markmiðið var náttúrlega að drepa Moggann“ Lífið Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Lífið Wintour víkur úr ritstjórastólnum eftir 37 ár Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Reykjalundur hlýtur alþjóðlega gæðavottun fyrir endurhæfingarþjónustu Lífið samstarf Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Lífið Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Lífið Djúsí maísstönglar frá BBQ kónginum Lífið samstarf Fleiri fréttir „Markmiðið var náttúrlega að drepa Moggann“ Eurovision aðdáendur flykkjast enn til Húsavíkur Hundruðir gengu skrúðgöngu í Laugardal Íslensku sjónvarpsverðlaunin veitt í fyrsta sinn í október Búið spil hjá Katy Perry og Orlando Bloom Súrrealísk upplifun í prinsessuleik í Versölum Sögulegt hús fær nýtt líf: Hafnfirðingar hrannast inn, segja sögur og þakka fyrir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Sjá meira