Íslenskt lambakjöt og skyr í Hvíta húsið 25. júlí 2006 14:00 Baldvin Jónsson hittir fulltrúa eldhússins í Hvíta húsinu og ræðir við þá um þann möguleika að forsetanum verði boðið uppá íslenskan mat.
Íslensk matvæli hafa verið að slá í gegn í Bandaríkjunum og hafa vinsældir þeirra ratað inná borð hjá forsetanum, George W. Bush. Forsagan er sú að þegar forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fór vestur um haf og snæddi kvöldverð með þeim George og eiginkonu hans, Lauru, vegna Special Olympics, gaf Ólafur þeim íslenskan lax, lamb, skyr, osta, smjör og að sjálfsögðu Nóa Siríus súkkulaðí. Yfirmanni eldhússins í Hvíta húsinu, Cristeta Comerford, leist mjög vel á íslenska hráefnið og nú er Baldvin Jónsson, framkvæmdarstjóri Áform, á leiðinni að hitta forsetakokkinn og ræða við fulltrúa eldhússins um íslensk matvæli. Íslenska lambakjötið og annað góðgæti gæti því verið borið á borð fyrir valdamestu menn heims þegar fram líða stundir. Matsveinar eldhússins í Hvíta húsinu versla mikið í Whole Food Market en það er verslunarkeðja sem býður meðal annars uppá íslenskan mat þar á meðal lambakjöt, mjólkurvörur og ferskan fisk. Walter Scheib, fyrrverandi yfirkokkur Hvíta hússins, er á mála hjá verslunarkeðjunni og hefur hann verið að kynna notkun á íslensku skyri og smjöri í matargerð sinni. Miklar kröfur eru gerðar til þeirra vara sem seldar eru í þessum búðum en þær selja eingöngu mat sem stenst strangar gæðavörur. Þetta er allt á frumstigi en ég ætla að hitta Comerford og ræða við hana um þann möguleika að boðið verði uppá íslensk matvæli í Hvíta húsinu, segir Baldvin en í október verður síðan haldin heljarinnar kynning á íslenskum matvælum í Washington. Baldvin segir íslensk matvæli vera þekkt fyrir gæði umfram magn og þess vegna séu bæði George Bush og Laura spennt fyrir þessum möguleika enda er ekki sama hvað er borið á borð fyrir þau. Íslenska lambið er ekki neitt sterabætt kjöt og Lauru er mjög umhugað um hvað forsetinn lætur ofan í sig, útskýrir Baldvin og George ætti ekki að vera svikin af kjöti íslenska lambsins. Við erum auðvitað mjög ánægðir með að íslenskir bændur skyldu taka upp gæðastýringu sem auðveldar allt markaðsstarf, bætir hann við. Sjálfur hefur Baldvin ekki komið í eldhús Hvíta hússins sem þykir ákaflega flott. Eldhús er jú alltaf bara eldhús en ég vona vissulega að Comerford bjóði mér þangað inn, segir hann.
Menning Mest lesið Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Karl Th. jarðsunginn í dag Lífið Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Fleiri fréttir Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par „Þetta er bara nútímavændi“ Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Stökk Ulrike Meinhof í heim hryðjuverkanna „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Krabbameinið það besta sem hafi komið fyrir hann Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Danski leikstjórinn setti vini sínum afarkosti Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Ungfrú Ísland teymið svarar fyrir sig Krefst þess að Elvar greiði sér miskabætur vegna hljóðbúts Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Sjá meira